Félag um fötlunarrannsóknir FuF

Félag um fötlunarrannsóknir (FuF) er vettvangur fræðafólks og annarra sem starfa á sviði fötlunarfræða á Íslandi. Félagið var stofnað árið 2006 samhliða uppbyggingu fræðigreinarinnar og hefur gegnt mikilvægu hlutverki í þróun hennar.

Markmið félagsins er að efla rannsóknir á sviði fötlunarfræða og stuðla að miðlun þekkingar um fötlun og líf fatlaðs fólks. Félagið hefur gegnum tíðina skapað vettvang fyrir samtal milli fræða og samfélags og lagt áherslu á samstarf milli fræðasamfélags, fatlaðs fólks og fjölskyldna þeirra.

FUF starfar í nánu samstarfi við Rannsóknasetur í fötlunarfræðum við Háskóla Íslands, auk þess að tengjast breiðu neti samstarfsaðila bæði innanlands og utan.

Félagið er hluti af norrænu og alþjóðlegu rannsóknasamfélagi í gegnum samstarf við Nordic Network on Disability Research (NNDR). Með því tengjast íslenskar rannsóknir víðara samhengi og taka þátt í fræðilegri umræðu á alþjóðavettvangi.

Share