IRIS rannsóknargátt

IRIS rannsóknargátt

IRIS (Icelandic Research Information System) sýnir rannsóknavirkni íslenskra háskóla og stofnana sem eiga aðild að kerfinu en það er rekið af Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni. 

Í IRIS rannsóknargátt gefst kostur á að skoða rannsóknarvirkni og þekkingu sem verður til við rannsóknir á Íslandi. Virknina má sjá hjá rannsakendum, stofnunum og fræðigreinum sem og í samstarfi fræða-, lista- og vísindafólks í alþjóðlegu samhengi.

IRIS var opnað í júní 2022 en kerfið er í þróun og mun taka breytingum eftir því sem verkefninu vindur fram. Háskóli Íslands er ein af 9 stofnunum sem standa að innleiðingu á kerfinu í fyrsta fasa.

Nánari upplýsingar um IRIS/PURE

Mynd af Anna Bjarnadóttir Anna Bjarnadóttir
  • Verkefnisstjóri
5255931 annabjarnadottir [hjá] hi.is Menntavísindastofnun