Hér kemur fréttabréf Menntavísindastofnunar í ágúst 2026.
Kynningarfundur um niðurstöður PISA
Þriðjudaginn 8. september nk. verða niðurstöður PISA-könnunarinnar 2025 kynntar í þátttökulöndunum. Á Íslandi verður kynningarfundurinn kl. 14-16 í Sögu (S114), húsnæði Menntavísindasviðs, enda hafa sérfræðingar sviðsins skrifað skýrslu um niðurstöðurnar, undir ritstjórn Önnu Kristínar Sigurðardóttur prófessors og Guðmundar Bjarka Þorgrímssonar sérfræðings hjá mennta- og barnamálaráðuneyti. Á þessum fundi verður efni niðurstöðuskýrslunnar kynnt og rætt en nánari dagskrá verður birt síðar.
Sjá nánar á viðburðardagatali.
________________________________________________
Menntavísindastofnun – hver erum við?
Menntavísindastofnun er staðsett á 6. hæð, suðurálmu. Verið velkomin til okkar hvenær sem er eða hafið samband í gegnum beiðnakerfi, tölvupóst eða Teams. Meginhlutverk Menntavísindastofnunar er að efla rannsóknir á Menntavísindasviði, í stórum dráttum:
- Að efla sýnileika rannsókna sviðsins, t.d. með Menntakviku, útgáfu Netlu og TUM, fréttabréfi, doktorsnáminu, rannsóknamiðlun, vef um rannsóknir sviðsins og samantektum um rannsóknir sviðsins.
- Að styðja við rannsóknir sviðsins, t.d. með faglegri ráðgjöf við fræðafólk og doktorsnema um aðferðafræði, rannsóknarhönnun, persónuvernd og örugga gagnameðhöndlun, aðferðafræðikennslu og framkvæmd rannsókna.
Þar að auki tökum við að okkur rannsóknir á sviði menntamála fyrir utanaðkomandi aðila og nú síðast er framkvæmd TIMSS-rannsóknarinnar undir hatti Menntavísindastofnunar.
Annars konar stuðningur við rannsakendur, s.s. við umsóknir um styrki og rekstur rannsóknarverkefna er eftir sem áður hjá rannsóknastjóra, Kristínu Harðardóttur.
Starfsfólk Menntavísindastofnunar frá vinstri:
Gyða Fanney Guðjónsdóttir: Verkefnastjóri doktorsnáms MVS, starfar með doktorsnámsnefnd.
Ólöf Ragna Einarsdóttir: Aðstoðarstjórnandi TIMSS-rannsóknarinnar.
Íris Sigurðardóttir: Rannsóknamiðlun, Menntakvika, sýnileiki rannsókna.
Ellen Dröfn Gunnarsdóttir: Stjórnandi TIMSS-rannsóknarinnar.
Steingerður Ólafsdóttir: Forstöðukona, starfar með vísindanefnd.
Ingibjörg Kjartansdóttir: Persónuvernd, aðferðafræðiaðstoð, framkvæmd rannsóknarinnar Börn og netmiðlar.
Sigrún Sif Eyfeld Jóelsdóttir: Aðferðafræðiráðgjöf (megindlegar og eigindlegar rannsóknir), þróun spurningalista, gagnaöflun og úrvinnsla.
Anna Bjarnadóttir: IRIS-rannsóknagátt, útgáfumál (Netla og TUM), sýnileiki rannsókna, ORCID auðkenni
________________________________________
Nýtt TUM rit
Tímarit um uppeldi og menntun, árgangur 35 tölublað 1 kom út í júnímánuði.
Í ritinu eru sjö ritrýndar greinar sem allar eru aðgengilegar í opnum aðgangi. Þær eru:
Aðgengi, sköpun og þátttaka barna: listahillan sem opnaði möguleika
Höfundar eru Þóra Lilja Kristjánsdóttir, Anna Magnea Hreinsdóttir
Frásagnir leikskólakennaranema af þróun inngildandi starfshátta í fjölmenningarlegu leikskólastarfi
Höfundar eru: Hrönn Pálmadóttir, Kristín Karlsdóttir, Renata Emilsson Pesková, Arna H. Jónsdóttir
„Ætli þetta sé ekki örugglega prentvilla?“: orðræða leikskólafólks á samfélagsmiðlum á tímum Covid
Höfundur er: Anna Elísa Hreiðarsdóttir
_______________________________________________
Netla
Ný grein kom út á vef Netlu í byrjun ágúst, greinin fjallar um kvikmyndina Me Before You í ljósi listævintýrsins um „Fríðu og Dýrið“ og greinir hvernig kvikmyndin endurskapar hefðbundið ævintýramynstur í samtímalegum búningi.
„En ég get gert þig hamingjusaman“: Raunir kvenhetja í Me Before You og Fríðu og Dýrinu. Höfundar eru Kristín Stella L’orange, Eiríksína Eyja Ásgrímsdóttir og Kristín Björnsdóttir
Gamlir draumar eða umbreytandi menntun
Höfundur er: Ólafur Páll Jónsson
Höfundar eru: Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir, Svava Björg Mörk, Samuli Ranta
Jákvæð vinnustaðamenning í leikskóla: forysta, samskipti, samstarf og skipulag
Höfundar eru: Inga Birna Sigurðardóttir, Anna Magnea Hreinsdóttir
Sýn leikskólabarna á þátttöku í ærslaleik
Höfundar eru: Atli Sævar Ágústsson, Sara Margrét Ólafsdóttir