ORCID er alþjóðlegt og varanlegt auðkenni fyrir rannsakendur. Auðkennið fylgir rannsakanda óháð vinnustað og hjálpar til við að tryggja að rannsóknarafurðir séu rétt tengdar.
Með því að tengja ORCID iD við IRIS getur þú dregið úr tvískráningu upplýsinga og auðveldað miðlun upplýsinga um rannsóknir þínar milli kerfa. Þegar tengingin hefur verið auðkennd og viðeigandi heimildir veittar getur IRIS/Pure sent upplýsingar um rannsóknarafurðir til ORCID. ORCID auðkennið auðveldar jafnframt tengingu rannsakanda og rannsóknarafurða í öðrum fræðilegum gagnagrunnum og kerfum.
Tengdu ORCID við IRIS:
- Skráðu þig inn í Pure. Farðu inn í Pure í gegnum IRIS og skráðu þig inn https://iris.hi.is/is/
- Opnaðu prófílinn þinn og farðu í Personal overview / Edit profile.
- Tengdu ORCID - Finndu ORCID í prófílnum.
Ef þú ert þegar með ORCID velur þú:
Create or Connect your ORCID ID
eða
Authenticate your ORCID ID
Þú færist þá yfir á vef ORCID þar sem þú skráir þig inn og samþykkir tenginguna.
- Heimilaðu flutning úr IRIS yfir í ORCID
Ef þú vilt að upplýsingar um rannsóknarafurðir þínar í IRIS geti farið yfir á ORCID skaltu velja:
Authorise export of content to ORCID
Veldu Proceed, skráðu þig inn á ORCID og veittu Pure/IRIS heimild til að senda upplýsingar á ORCID-prófílinn þinn.
- Vistaðu efnið
Farðu aftur í Pure/IRIS og veldu Save ef þess er þörf
Smelltu á myndina til að stækka hana
Að flytja efni úr IRIS yfir í ORCID:
Ef rannsóknarafurðir þínar eru í IRIS rannsóknargáttinni en ekki tengdar við ORCID auðkennið þitt þá er mögulegt að flytja þær beint í gegnum viðurkennda gagnagrunna eins og Scopus, Web of Science og Crossref.
EInnig er mögulegt að flytja margar færslur í einu úr IRIS/PURE í gegnum BibTex í einföldum skrefum:
- Niðurhal úr Pure/IRIS - finndu færslurnar sem þú vilt færa yfir í Pure - veldu download list og BibTex snið (vista sem .bib)
- Opna BibTex innflutning í ORCID - Skráðu þig inn á ORCID - smelltu á +add works og veldu add BibTex. Velja efni og flytja inn - opnaðu BibTex skjalið sem var vistað úr úr Pure/IRIS - veldu þær færslur sem vantar í ORCID og smelltu á Import your work to record.
Hafa þarf í huga að BibTeX er ekki alltaf staðlað á milli kerfi. Er ORCID hafnar skrá getur það verið út af kóðun sem ORCID á erfitt með að lesa, t.d. þegar um er að ræða íslenska stafi, gæsalappir í titlum, bandstrik, óvenjuleg bil eða sérstafi.
Veldu þá leið sem gefur bestu lýsigögnin og tryggðu að varanlegt auðkenni verksins, svo sem DOI eða ISBN, fylgi með þegar það er til staðar.
Yfirfara áður en vistað er:
- höfunda og höfundaröð
- titil, ár og tegund verks
- DOI, ISBN, ISSN eða URL
...
Skráning fjölmiðlaumfjöllunar í IRIS getur aukið sýnileika rannsókna og sýnt frá á samfélagsleg áhrif þeirra. Einnig auðveldar hún yfirsýn yfir hvernig rannsóknir og sérfræðiþekking rannsakenda birtast í fjölmiðlum.
Hvað er gott að skrá?
Tegund skráningar | Hvenær á að velja hana? | Dæmi |
| Fjölmiðlaumfjöllun (Media coverage) | Þegar fjölmiðill eða annar utanaðkomandi aðili fjallar um rannsóknir þínar, niðurstöður eða verkefni. | Blaðamaður skrifar frétt um nýja rannsókn, vitnar í rannsóknarafurð eða fjallar um rannsóknarverkefni. Umfjöllun í erlendum/innlendum miðli um rannsóknaverkefni við HÍ. |
| Framlag til fjölmiðla (Media contribution) | Þegar þú leggur sjálf/ur efni til fjölmiðils eða kemur þar fram sem rannsakandi eða sérfræðingur. | Viðtal, þátttaka í hlaðvarpi, útvarps- eða sjónvarpsþætti, eigin pistill, bloggfærsla eða grein fyrir almenning. |
Hvaða upplýsingar þarf að skrá?
Skráðu eins ítarlega og hægt er:
- Titil umfjöllunar eða þáttar.
- Dagsetningu birtingar eða útsendingar.
- Heiti miðils (t.d. RÚV, Vísir, Morgunblaðið).
- Tegund miðils (vefur, dagblað, sjónvarp, útvarp, hlaðvarp o.s.frv.).
- Vefslóð (URL) ef hún er til staðar.
- Stutta lýsingu á efni umfjöllunarinnar.
- Tengingu við rannsóknargrein, rannsóknaverkefni eða aðra skráða afurð í IRIS þegar það á við.
Góðar venjur
- Tengdu umfjöllun við viðeigandi rannsóknarafurð í IRIS.
- Skráðu sérstaklega umfjöllun sem sýnir áhrif eða samfélagslegt gildi rannsókna.
- Notaðu varanlega vefslóð þegar mögulegt er.
- Settu saman í eina færslu margar fréttir sem fjalla um sömu rannsókn eða sama rannsóknarverkefnið þegar það hentar. Til dæmis mætti stofna færsluna Fjölmiðlaumfjöllun um niðurstöður rannsóknarinnar X og skrá undir henni nokkrar umfjallanir.
- Hafa skal í huga að skrá aðeins lýsingu á upprunalegu efni og setja tengil í það. Ekki skal afrita heilar fréttir, greinar eða annað höfundarréttarvarið efni inn í IRIS.
Ef umfjöllunin eykur sýnileika rannsókna HÍ, dregur fram sérþekkingu rannsakenda eða getur nýst sem dæmi um samfélagsleg áhrif rannsókna er almennt rétt að skrá hana í IRIS.
Fjölmiðlafærslur geta birst opinberlega í IRIS. Því skal ekki setja trúnaðarupplýsingar, persónugreinanleg gögn eða efni sem ekki má birta opinberlega í færsluna.