Rannsóknasetur í fötlunarfræðum var stofnað í mars 2006 og hefur frá upphafi verið þverfaglegur vettvangur rannsókna á sviði fötlunarfræða. Setrið hefur jafnframt staðið fyrir ráðstefnum, málþingum, námskeiðum og fyrirlestrum, eitt og sér eða í samstarfi við aðra, birt rannsóknir og skýrslur um málefni fatlaðs fólks og staðið að útgáfu fræðibóka.
Heimasíða Rannsóknasetursins veitir upplýsingar um fötlunarfræði og málefni fatlaðs fólks á Íslandi og alþjóðavettvangi.
Kennarar í fötlunarfræðum hafa iðulega aflað viðamikla innlenda og erlenda styrki, þar má m.a. nefna tvo stóra Marie Curie ITN styrki, NordForsk styrki, verkefnastyrki og öndvegisstyrk frá Rannís. Þá má einnig nefna þjónustuverkefnið European Disability Experts (áður ANED) unnið fyrir Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.
Innlendir og erlendir nýdoktorar og doktorsnemar hafa starfað við Rannsóknasetrið, með styrki úr innlendum og erlendum sjóðum (HÍ, Rannís, ESB, NordForsk). Starfsemi setursins er vel þekkt utan landsteinanna og erlendir PhD nemar, fræðimenn og gestaprófessorar hafa haft aðstöðu við Rannsóknarsetrið um lengri og skemmri tíma.
Megináherslur í starfsemi Rannsóknasetursins eru rannsóknir í fötlunarfræðum og taka starfsmenn þess þátt í viðamiklum alþjóðlegum, evrópskum og norrænum rannsóknaverkefnum. Rannsóknasetrið hefur jafnframt unnið þjónustuverkefni fyrir opinbera aðila og hagsmunaaðila, eðal annars fyrir samtök fatlaðs fólks. Starfsemi rannsóknasetursins er fjármögnuð með erlendum og innlendum rannsóknastyrkjum og með þjónustuverkefnum. Þetta veldur því að töluverðar sveiflur geta verið á starfsmannafjölda rannsóknasetursins hverju sinni.
Forstöðumaður Rannsóknasetursins er Rannveig Traustadóttir, prófessor emerita í fötlunarfræðum rannvt@hi.is