Hér koma nokkrir hápunktar í febrúar í tengslum við rannsóknir á sviðinu.
TIMSS
Ísland tekur þátt í TIMSS rannsókninni (Trends in International Mathematics and Science Study) árið 2027. Menntavísindastofnun hefur umsjón með undirbúningi og framkvæmd en Ellen Dröfn Gunnarsdóttir stýrir verkefninu. Um er að ræða alþjóðlega rannsókn sem metur árangur grunnskólanema í stærðfræði og náttúrufræði.
Markmið rannsóknarinnar eru að bera saman námsárangur milli landa, greina þróun á námsárangri yfir tíma og kanna þætti sem hafa áhrif á nám, svo sem kennsluaðferðir, námskrá og viðhorf nemenda.
International Association for the Evaluation of Educational Achievement (IEA) stendur að rannsókninni og hefur hún verið framkvæmd á fjögurra ára fresti frá 1995.
Samningur á milli Háskóla Íslands og mennta- og barnamálaráðuneytis var undirritaður í síðustu viku.
Börn og netmiðlar
Menntavísindastofnun hefur yfir að ráða gögnum frá könnuninni Börn og netmiðlar í opnum en stýrðum aðgangi. Gögnin eru frá árunum 2021, 2023 og niðurstöður fyrir 2025 verða aðgengilegar á haustmánuðum 2026. Gögnin frá fyrirlögnunum þremur er verið að undirbúa til vistunar í GAGNÍS. Hér er um umfangsmikið gagnasafn að ræða sem er tilvalið fyrir áhugasama fræðimenn að nýta til fræðiskrifa. Þau sem hafa áhuga geta sótt um aðgengi að gögnunum með því að hafa samband við Ingibjörgu Kjartansdóttur verkefnisstjóra (ik@hi.is).
Helstu efnisflokkar sem hægt væri að skoða:
- Samfélagsmiðlanotkun
- Upplifun á netinu
- Gervigreind
- Tölvuleikir
- Fréttalæsi, falsfréttir og fréttaforðun
- Lykilorð og netöryggi
- Klám
- Kynferðisleg komment
- Nektarmyndir
- Auk nokkurra bakgrunsspurninga
Sjá nánar:
Sérrit Netlu 2025 - Íslenska æskulýðsrannsóknin I
Út er komið sérrit á vegum Netlu sem tileinkað er Íslensku æskulýðsrannsókninni (ÍÆ).
Í ritinu sem er það fyrra af tveimur, eru fjórar ritrýndar greinar ásamt inngangi. Ritstjórar sérritsins eru Kristján Ketill Stefánsson og Valgerður S. Bjarnadóttir. Faglegur stjórnandi Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar er Ragný Þóra Guðjohnsen en hún skrifar jafnframt inngang í ritið. Greinarnar eru:
- Fjárhættuspilahegðun ungmenna á Íslandi: Samanburður á niðurstöðum ESPAD-spurningakönnunar frá 2015 og 2024, höfundar eru Ragný Þóra Guðjohnsen og Unnar Geirdal Arason.
- Ólíkur reynsluheimur nemenda í bóknámi og starfsnámi í framhaldsskólum – samanburður á bakgrunni, líðan, álagi og viðhorfum til náms, höfundar eru Sæberg Sigurðsson og Elsa Eiríksdóttir.
- Sjálfsskaðahegðun ungmenna í 10. bekk á Íslandi: Algengi og forspárþættir, höfundar eru Ragný Þóra Guðjohnsen og Lóa Guðrún Gísladóttir
- Brotthvarf eða námshlé? Aðstæður brotthvarfsnema, ástæður fyrir brotthvarfi og áform um frekara nám, höfundar eru Hans Haraldsson, Ragný Þóra Guðjohnsen og Kolbrún Þ. Pálsdóttir
Sjá nánar á vef Netlu: Íslenska æskulýðsrannsóknin I - Netla - veftímarit um uppeldi og menntun
Rannsóknasíða MVS
Við minnum á að hægt er að skoða yfirlit yfir fjölbreytt rannsóknaverkefni Menntavísindasviðs inn á www.mvsrannsoknir.hi.is
- Ertu með nýja rannsókn sem þú vilt koma á framfæri - Sendu okkur allt um rannsóknina og við setjum hana inn á síðuna fyrir þig.
- Eru komnar niðurstöður sem gott væri að bæta við rannsóknina þína inn á mvsrannsoknir.hi.is. Hafðu samband við Írisi Sigurðardóttur (irissigurdardottir@hi.is) til þess að uppfæra efnið!
Nýir þættir í Menntavísindavarpinu
Færri börn undir 13 ára eru á samfélagsmiðlum
Samkvæmt nýjum niðurstöðum rannsóknarinnar, Börn og netmiðlar, samstarfs Fjölmiðlanefndar og Menntavísindastofnunar Háskóla Íslands eru mörg dæmi þess að við séum að búa börnum heilbrigðara umhverfi á netinu.
Ingibjörg Kjartansdóttir, verkefnisstjóri Menntavísindasviðs og Menntavísindastofnunar HÍ og Skúli Bragi Geirdal, sviðsstjóri Netvís – Fjölmiðlanefnd, mættu í Menntavísindavarpið og ræddu niðurstöður um samfélagsmiðlanotkun ungmenna og viðhorf þeirra til áreitis og öryggis á netinu. Hlusta á þáttinn
Nýir draumar um framtíð menntunar
Ólafur Páll Jónsson, prófessor í heimspeki við Menntavísindasvið ræðir nýja drauma um menntun framtíðar í nýjasta þætti Menntavísindavarpsins. Hann hefur unnið mikið með sjálfbærnimenntun þar sem kemur við sögu þær hörmungar sem ganga á í heiminum af margvíslegu tagi; loftslagsváin, líffræðilegur fjölbreytileiki, stríð, fátækt og gervigreind. Þá kemur að spurningunni, hvernig eigum við að skipuleggja framtíðina og þar á meðal skólakerfin í ljósi þessara áskorana? Hlusta á þáttinn
Varði nýverið doktorsrannsókn um félagslyndi ungra leikskólabarna
Bryndís Gunnarsdóttir varði nýverið doktorsrannsókn sína, Félagslyndi ungra leikskólabarna: Rannsókn á óyrtum félagslegum samskiptum í jafningjahópnum og mætti í Menntavísindavarpið á dögunum þar sem segir frá rannsókninni, hvað kom á óvart í niðurstöðunum og hvernig þær geta nýst áfram. Í doktorsrannsókninni fjallar hún um félagslyndi (e. sociality) ungra leikskólabarna með áherslu á þátttöku þeirra og færni í samskiptum við jafningja. Sérstaklega var skoðað hvernig þau beita óyrtum aðferðum til að taka virkan þátt í jafningjahóp, móta hann í samvinnu við önnur börn og skapa tilfinningu fyrir hinu „sameiginlega við “ (e. mutual we). Hlusta á þáttinn
Umsóknarfrestir styrkja
- Nordforsk styrkir til menntarannsókna | Umsóknarfrestur er 22. apríl 2026. Nánari upplýsingar hér.
- NOS-HS umsóknir fyrir norræn rannsóknarnet í hug- og félagsvísindum | Umsóknarfrestur er 15. apríl 2026. Nánari upplýsingar er að vinna á vef NordForsk.
_______________________________________________________________________________________________
Við getum aðstoðað þig
Við minnum á beiðnakerfi Menntavísindastofnunar og vefinn okkar þar sem ýmsar gagnlegar upplýsingar er að finna
IRIS, ORCID og sýnileiki rannsókna
Hafðu samband við Önnu Bjarnadóttur (annabjarnadottir@hi.is) ef þig vantar aðstoð við að tengja efni í gegnum ORCID og IRIS rannsóknargátt.
Útgefið efni
Nýtt útgefið efni Menntavísindasviðs 2025 má nálgast í rannsóknagáttinni - IRIS
Listi yfir rannsóknarverkefni innan Menntavísindasviðs er að finna á https://mvsrannsoknir.hi.is/
Allar birtar greinar frá Netlu og TUM eru aðgengilegar í opnum aðgangi á heimasíðum ritanna Netla.hi.is og TUM.hi.is