Kæra starfsfólk Menntavísindasviðs.
Gleðilegt ár og takk fyrir samstarfið á liðnu ári. Við byrjum árið af krafti og kynnum til leiks nýja rannsóknarráðgjafa sviðsins og fleira til.
Rannsóknarráðgjafar Menntavísindasviðs
Fjórir reyndir rannsakendur eru nú til taks fyrir rannsakendur MVS og geta veitt stuðning á mismunandi stigum rannsókna. Um er að ræða tilraunaverkefni sem hefur að markmiði að efla rannsóknir og fræðilegar birtingar sviðsfólks. Þau sem vantar stuðning og ráðgjöf eru hvött til að hafa samband á menntavisindastofnun@hi.is eða beint við rannsóknarráðgjafna (hér í starfrófsröð):
- Anna Kristín Sigurðardóttir er prófessor við Menntavísindasvið. Hún hefur langa reynslu af rannsóknum um fjölbreytt efni innan menntavísinda, einkum hagnýtum rannsóknum sem unnar eru í samstarfi við vettvang, t.d. samþættum rannsóknar- og þróunarverkefnum. Viðfangsefnið varða t.d. forystu, skólaþróun og kennsluhætti. Hún beitir fjölbreyttum aðferðum, t.d. vettvangsathugunum og viðtalsaðferðum. Hún getur veitt ráðgjöf um flest stig rannsóknarferlisins, t.d. um samskipti við stjórnvöld og aðra þátttakendur, afmörkun og hönnun rannsóknarviðfangsefnis, gerð rannsóknarspurninga, skipulag og ritun rannsóknargreina og frágang handrita, ráðleggingar um viðbrögð við ritrýni, og miðlun og hagnýtingu niðurstaðna til vettvangs.
- Hafdís Guðjónsdóttir er prófessor emerita við Menntavísindasvið. Hún hefur langa reynslu af rannsóknum innan menntavísinda meðal annars á starfi kennara og fagmennsku, kennsluháttum, menntun án aðgreiningar, fjölmenningu, kennaramenntun og þróun hennar. Hún hefur nýtt sér fjölbreyttar eigindlegar rannsóknaraðferðir eins og vettvangsathuganir, viðtöl og frásagnarrýni (narrative inquiry), en einnig aðferðir þátttökurannsókna eins og starfendarannsókna (action research) og starfstengdrar sjálfsrýni (self-study of teaching and teacher education practice). Hafdís hefur langa reynslu af ritstjórastörfum bæði hér á landi en einnig sem ritstjóri erlends tímarits. Hún getur veitt ráðgjöf varðandi flest stig við hönnun og skipulag rannsóknarverkefnis, ýmis vinnubrögð við gagnaöflun og gagnagreiningu, ritun ágrips og þátttöku á erlendum ráðstefnum, framsetningu, ritun og frágang handrita, og viðbrögð við ritrýni.
- Ingólfur Ásgeir Jóhannesson er prófessor emeritus við Menntavísindasvið. Hann hefur langa reynslu af rannsóknum um fjölbreytt efni innan menntavísinda svo sem námskrár- og kennslufræði, kynjafræði og skólasögu. Hann hefur beitt fjölbreyttum aðferðum í rannsóknum sínum, t.d. orðræðugreiningu, viðtalsaðferðum og vettvangsathugunum. Ingólfur getur veitt ráðgjöf um flest stig rannsóknarferlisins, t.d. um afmörkun og hönnun rannsóknarviðfangsefnis, gerð rannsóknarspurninga, samskipti við þátttakendur, skipulag og ritun rannsóknargreina, tímaritaval og frágang handrita, ráðleggingar um viðbrögð við ritrýni, og ritun blaðagreina upp úr birtum vísindagreinum.
- Svanborg R Jónsdóttir er prófessor emerita við Menntavísindasvið. Hún hefur stundað menntarannsóknir í rúmlega 20 ár. Hún hefur gert rannsóknir sem snúast um sérsvið hennar, nýsköpunar- og frumkvöðlamennt. Flestar rannsóknir hennar hafa byggt á eigindlegri aðferðafræði, m.a. starfendarannsóknum, frásagnarrýni (narrative inquiry), starfstengdri sjálfsrýni í kennaramenntun (self-study in teacher education practice S-STEP), sjálfsþátttökurannsóknum (auto ethnography), notkun listrænna aðferða og myndtjáningaraðferðum. Hún getur veitt ráðgjöf um ýmsa þætti gagnaöflunar og túlkunaraðferða í eigindlegum rannsóknum, rannsóknaráætlana m.a. um að skrifa og móta tilgang, markmið og rannsóknarspurningar og ritun og frágang greina.
Samfélagsmiðla- og snjallsímanotkun barna og ungmenna - Málþing
Málþingið, Samfélagsmiðla- og snjallsímanotkun barna og ungmenna fer fram þriðjudaginn 10. febrúar í Hátíðarsal Háskóla Íslands, kl. 15:00–16:30.
Málþingið eru hluti af fyrirlestraröð Menntavísindasviðs HÍ, Efst á baugi og unnin í samstarfi við Netvís – Fjölmiðlanefnd í tilefni af Netöryggisdeginum 10. febrúar.
Kynntar verða nýjustu niðurstöður úr landskönnuninni Börn og netmiðlar meðal 9 - 18 ára grunn- og framhaldsskólanema (fyrirlögn haustið 2025). Fjallað verður um samfélagsmiðlanotkun ungmenna, áreiti og netöryggi, og notkun og viðhorf til gervigreindar. Að lokum fara fram innlegg frá ungmennum og pallborðsumræður. Hvetjum öll til að mæta! Sjá nánar hér
Börn og netmiðlar
Menntavísindastofnun hefur yfir að ráða gögnum frá könnuninni Börn og netmiðlar í opnum en stýrðum aðgangi. Gögnin eru frá árunum 2021, 2023 og niðurstöður fyrir 2025 verða aðgengilegar í byrjun árs 2026. Hér er um umfangsmikið gagnasafn að ræða sem er tilvalið fyrir áhugasama fræðimenn að nýta til fræðiskirfa. Sjá nánar:
Vantar þig aðstoð við IRIS/PURE vegna framtals starfa fyrir 1. febrúar?
Við minnum á að við getum aðstoðað við að setja inn efni í rannsóknargáttina IRIS/PURE svo það verði tilbúið fyrir framtal starfa 1. febrúar nk.
Hafðu samband við Önnu Bjarnadóttur annabjarnadottir@hi.is til þess að fá aðstoð.
Hér eru nánari upplýsingar á UGLU um framtal starfa 2026
Næstu umsóknarfrestir styrkja
- Doktorsnámsstyrkur úr styrktar og rannsóknarsjóði Þuríðar J. Kristjánsdóttur | Umsóknarfrestur er 16. feb. Sótt er um með því að senda á sjodir@hi.is. Nánari upplýsingar hér.
- Doktorsstyrkir Háskóla Íslands | Umsóknarfrestur er til 1.febrúar 2026. Nánari upplýsingar hér.
- Nordforsk styrkir til menntarannsókna | Umsóknarfrestur er 22. apríl 2026. Nánari upplýsingar hér.
- NOS-HS umsóknir fyrir norræn rannsóknarnet í hug- og félagsvísindum | Umsóknarfrestur er 15. apríl 2026. Nánari upplýsingar er að vinna á vef NordForsk.
_____________________________________________________________________________
Við getum aðstoðað þig
Við minnum á beiðnakerfi Menntavísindastofnunar og vefinn okkar þar sem ýmsar gagnlegar upplýsingar er að finna
Útgefið efni
Nýtt útgefið efni Menntavísindasviðs 2025 má nálgast í rannsóknagáttinni - IRIS
Listi yfir rannsóknarverkefni innan Menntavísindasviðs er að finna á https://mvsrannsoknir.hi.is/
Allar birtar greinar frá Netlu og TUM eru aðgengilegar í opnum aðgangi á heimasíðum ritanna Netla.hi.is og TUM.hi.is