Kæra starfsfólk Menntavísindasviðs
Hér koma upplýsingar um það helsta sem við viljum minna á í þessum mánuði.
Rannsóknasjóður Háskóla Íslands: Verkefnastyrkir
Við minnum á að skilafrestur umsókna í Rannsóknasjóð er 20. október nk.
Hér er nánari lýsing á umsóknarferlinu
Pælt í PISA
Hvar og hvenær: 20. október í stofu 346 klukkan 14:00-15:30
Vísindi og stærðfræðilæsi – frammistaða, aðstaða og fagþekking er fyrsta málstofan í málstofuröð PISA.
Edda Elísabet Magnúsdóttir lektor og Berglind Gísladóttir dósent halda erindi.
Hvetjum öll til að mæta.
Málstofan er hluti af málstofuröð þar sem kafað verður dýpra í niðurstöður PISA 2025. Skýrsluhöfundar halda erindi um einstaka kafla skýrslunnar um niðurstöður PISA 2025. Fundarstjóri verður Anna Kristín Sigurðardóttir prófessor og ritstjóri skýrslunnar.
Hér má sjá nánari upplýsingar um málstofuröðina
Atlas vinnustofa í nóvember
Hvar og hvenær: 10. nóvember 2026 kl. 13:20-15:40 í stofu S-285
Vinnustofa um ATLAS.ti er ætluð doktorsnemum en áhugafólk um eigindlegar rannsóknaraðferðir er einnig velkomið.
Umsjón með vinnustofunni hefur Hrafnhildur Snæfríðardóttir Gunnarsdóttir, lektor við hjúkrunar- og ljósmóðurfræðideild HÍ.
ATLAS.ti er hugbúnaður sem nýtist við greiningu eigindlegra gagna, svo sem viðtala, ritaðs efnis, mynda og annarra rannsóknargagna. Forritið hjálpar rannsakendum að skipuleggja gögn, þróa þemu og vinna markvisst úr umfangsmiklu efni.
Á vinnustofunni verður farið yfir helstu eiginleika ATLAS.ti og hvernig hægt er að nýta forritið við rannsóknarvinnu.
IRIS rannsóknargátt - aðstoð
Hvar og hvenær:
Þriðjudaginn 27. október klukkan 13 –15 í fundarherbergi 652.
Fimmtudaginn 29. október klukkan 11-13 í fundarherbergi 652.
Nú er tilvalið að huga að því að setja inn efni í IRIS rannsóknargátt til að einfalda skráningar í tengslum við framtal starfa, ekki síst ráðstefnuerindi frá Menntakviku eða öðrum viðburðum. Anna Bjarnadóttir verður til aðstoðar með IRIS rannsóknagátt, endilega lítið við þegar ykkur hentar og komið með eigin tölvu. Einnig er sjálfsagt að bóka tíma sem ykkur hentar betur til að fá aðstoð varðandi skráningar í IRIS hjá Önnu í gegnum tölvupóst annabjarnadottir@hi.is.
Netla og TUM
Við vekjum athygli á kalli eftir greinum í fyrirhugað sérrit Netlu haustið 2027. Að þessu sinni verður sjónum beint að rannsóknum sem tengjast íþróttum, næringu og heilsueflingu.
Sjá nánari upplýsingar á vef Netlu: Greinakall - Netla - veftímarit um uppeldi og menntun
Einnig er stefnt að útgáfu sérrits á vegum TUM um niðurstöður PISA 2025 í lok árs 2027.
Í ritinu verður rýnt í afmarkaða þætti í niðurstöðum fyrir Ísland og þær ræddar í breiðara samhengi. Sjá nánar á vef TUM