Hér kemur fréttabréf Menntavísindastofnunar í september 2026.
Menntakvika haldin í 30. skipti í ár!
Senn líður að Menntakviku, árlegri ráðstefnu Menntavísindasviðs Háskóla Íslands sem í ár verður haldin í 30. sinn. Ráðstefnuhefðin nær aftur til ársins 1997 þegar Kennaraháskóli Íslands efndi fyrst til málþings um rannsóknir, nýbreytni og þróun. Hér að neðan má sjá myndir frá málþinginu 2006 sem Jón Reykdal, þáverandi lektor við KHÍ, tók og finna má í myndasafni Háskóla Íslands. Ef einhver lumar á gömlum myndum frá fyrstu árum ráðstefnunnar þætti okkur mjög gaman að fá að sjá þær og rifja þannig upp sögu Menntakviku með þeim sem hafa tekið þátt í henni í gegnum tíðina. Málþingið varð fljótt mikilvægur vettvangur fyrir rannsóknir og þróunarstarf á sviði menntunar. Eftir sameiningu Kennaraháskóla Íslands og Háskóla Íslands árið 2008 hélt ráðstefnuhefðin áfram innan Menntavísindasviðs.
Mikilvæg tímamót urðu árið 2010 þegar nafni málþingsins var breytt í Menntakviku, árlega ráðstefnu Menntavísindasviðs um rannsóknir, nýbreytni og þróun. Frá þeim tíma hefur Menntavísindastofnun haldið utan um framkvæmd ráðstefnunnar.
Menntakvika hefur þróast og vaxið í takt við breytingar í menntasamfélaginu. Árið 2020 fór ráðstefnan alfarið fram á netinu vegna heimsfaraldurs og þátttaka varð meiri en nokkru sinni fyrr. 2021 var sami háttur á og ráðstefnan eingöngu rafræn. Önnur stór breyting varð árið 2024 þegar Menntakvika flutti úr Stakkahlíð í Sögu, nýtt húsnæði Menntavísindasviðs við Hagatorg.
Árið 2026 verður því merkum áfanga fagnað og áfram verður Menntakvika vettvangur fyrir rannsóknir, nýbreytni, þróun og samtal um menntun.
Sjá nánari upplýsingar um dagskrá Menntakviku
Menntakvikuboð - þér er boðið! Haldið verður Menntakvikuboð, fimmtudaginn 1. október kl 17:15 eftir að erindum lýkur þann daginn til að fagna uppskeru menntarannsókna. Boðið verður upp á léttar veitingar og drykki. Verið öll velkomin. |
Takk fyrir aðstoðina! Við viljum líka nota tækifærið og þakka ykkur sem voruð svo almennileg að færa til kennslu eða nýta Menntakviku sem hluta af kennslu fyrir nemendur, svo það yrði pláss fyrir öll erindin í húsi. Það er ómetanlegt og frábært að sjá hversu mörg áhugaverð erindi verða kynnt á Menntakviku þetta árið. Við minnum á að láta nemendur vita af nýrri staðsetningu ef kennsla var færð yfir í aðra stofu. |
Netla og TUM Við vekjum athygli á kalli eftir greinum í fyrirhugað sérrit Netlu haustið 2027. Að þessu sinni verður sjónum beint að rannsóknum sem tengjast íþróttum, næringu og heilsueflingu. Sjá nánari upplýsingar á vef Netlu: Greinakall - Netla - veftímarit um uppeldi og menntun Einnig er stefnt að útgáfu sérrits á vegum TUM um niðurstöður PISA 2025 í lok árs 2027. Í ritinu verður rýnt í afmarkaða þætti í niðurstöðum fyrir Ísland og þær ræddar í breiðara samhengi. Sjá nánar á vef TUM: https://tum.hi.is/kall/ |