IRIS (Icelandic Research Information System) sýnir rannsóknavirkni íslenskra háskóla og stofnana sem eiga aðild að kerfinu en það er rekið af Landsbókasafni Íslands – Háskólabókasafni. 

Í IRIS rannsóknargátt gefst kostur á að skoða rannsóknarvirkni og þekkingu sem verður til við rannsóknir á Íslandi. Virknina má sjá hjá rannsakendum, stofnunum og fræðigreinum sem og í samstarfi fræða-, lista- og vísindafólks í alþjóðlegu samhengi.

IRIS var opnað í júní 2022 en kerfið er í þróun og mun taka breytingum eftir því sem verkefninu vindur fram. Háskóli Íslands er ein af 9 stofnunum sem standa að innleiðingu á kerfinu í fyrsta fasa.

Heill heimur rannsakenda á einum stað!

Láttu ekkert stoppa þig - finndu út hér hvernig þú setur inn efni á IRIS!

Hér má sjá öfluga rannsóknavirkni Menntavísindasviðs meðal annars útgefið efni rannsakenda sviðsins og styrkt rannsóknarverkefni.

Bókaðu ráðgjöf hjá verkefnisstjóra Menntavísindastofnunar ef þú vilt aðstoð við að setja inn efni inn á IRIS rannsóknargátt.

Nánari upplýsingar um IRIS/PURE

Share