Hér birtast upptökur af málþingum, ráðstefnum og fræðslufundum
Lesfimi og orðaforði aukinn með PALS félagakennslu og Starling.
Rannsókna- og fræðslustofa um þroska læsi og líðan barna og ungmenna í samstarfi við Hólabrekkuskóla stóðu að viðburðinum sem haldinn var í Gerðubergi, Breiðholti 8. apríl 2026.
Fundarstjóri: Lovísa Guðrún Ólafsdóttir, skólastjóri Hólabrekkuskóla.
Upptöku frá viðburðinum má finna hér: Lesfimi og orðaforði aukinn með PALS félagakennslu og Starling
Á fræðslufundinum fjölluðu þau Dr. Emma Vardy og Aaron Jordan um þróun kennsluhátta og gerð kennsluefnisins Starling. Einnig kynntu Amelia Jara Larimer og Sólveig Edda Ingvarsdóttir innleiðingu aðferðarinnar í Hólabrekkuskóla, áskoranir og tækifæri.
Lestrarkennsluaðferðin Starri var þróuð í gegnum samstsarf LEAD Academy Trust og Notttingham Trent Háskólans árið 2021. Höfundar aðferðarinnar, Aaron Jordan og Emma Vardy, sáu að í orðaforðakennslu í grunnskólum Bretlands vantaði nálgun til að flýta þróun orðaforðaþekkingu nemenda, og að slík nálgun myndi hafa jákvæð áhrif á lesskilning. Námsaðferðin gefur kennurum gagnreyndar kennsluaðferðir við orðaforðavinnu. Tilgangur hennar er að hjálpa öllum börnum að breikka og dýpka orðaforða sinn til þess að lesskilningur aukist. Haustið 2025 hófst samstarf höfunda við sérfræðinga frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands og Hólabrekkuskóla um innleiðingu og aðlögun efnisins fyrir íslenska nemendahópa.
Dr. Emma Vardy starfar við Nottingham Trent háskólann. Rannsóknir hennar eru á sviði sálfræði menntunar, einkum tengt læsi barna. Dr. Vardy hefur sérstakan áhuga á viðhorfi til lestrar, lestrarhvatningu og yndislestri grunn- og framhaldsskólanema. Nýjustu greinar hennar fjalla um sjónarhorn foreldra á fjölbreytileika lesefnis barna þeirra og um þátttöku dýra umhverfi menntastofnana. Dr. Vardy hefur einnig unnið að gerð leiðbeininga fyrir mat á innleiðingu og framkvæmd hjá TASO (Transforming access and outcomes for students).
Aaron Jordan er aðstoðarskólastjóri í grunnskóla í Leicestershire. Hann hefur kennt á yngsta og miðstigi í 18 ár og hefur verið aðstoðarskólastjóri í 13 ár. Hlutverk hans er meða annars að stýra kennslu í ensku og lestri þvert á skólann (LEAD Academy Trust), innleiða kennsluaðferðir í lestri og þróa lestrarmenningu. Aaron tók þátt í PALS-UK rannsókninni sem hófst haustið 2019 og hefur í samvinnu við Dr. Emmu Vardy þróað nýja nálgun við að greina, kenna og meta orðaforða.
Open session to hear about Starling
Talk Overview
Starling was developed in 2021 through a collaboration between LEAD Academy Trust and Nottingham Trent University. Working together, Aaron and Emma identified that primary schools in the UK do not have an approach to accelerate vocabulary development, and if there was such an approach, it would positively impact literacy outcomes. The programme provides teachers with an evidence-based pedagogical approach to teach vocabulary. Its purpose is to help all children build the breadth and depth of their vocabulary to improve literacy outcomes. It is a whole-class approach.