
Menntakvika, árleg ráðstefna Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, verður haldin í Sögu, nýju húsi Menntavísindasviðs 2., 3. og 4. október 2025, í 29. skipti.
Yfirskrift Menntakviku í ár er Skapandi leiðir í skóla- og frístundastarfi: Mótum nýja framtíð.
Markmið ráðstefnunnar Menntakviku er að kynna og miðla því sem efst er á baugi í menntavísindum og tengdum sviðum hverju sinni. Í ár fögnum við einnig flutningum í Sögu og bjóðum gestum að skoða húsnæðið og þá möguleika sem það hefur upp á að bjóða. Á laugardeginum 4. október verður boðið upp á skapandi smiðjur og kynningar í glæsilegu nýju húsnæði Menntavísindasviðs og gefst dýrmætt tækifæri til samvinnu fræða og fagvettvangs.
Menntavísindasvið býður öllum sem stunda rannsóknir í menntavísindum og tengdum fagsviðum til þátttöku á ráðstefnunni, sem og öllu starfsfólki annarra stofnana sem rannsaka eða vinna með viðeigandi málefni. Hægt verður að fylgjast með málstofunum á Zoom, málstofurnar verða ekki teknar upp.
Ráðstefnan er öllum opin og ókeypis.
Frekari upplýsingar er að finna á heimasíðu Menntakviku - www.menntakvika.hi.is