Hvenær
30. september 2026 til 1. október 2026
09:00 til 18:00
Hvar
Saga
Nánar

Kæru samstarfsaðilar,  

Menntakvika, árleg ráðstefna í menntavísindum, verður haldin miðvikudag og fimmtudag, 30. september og 1. október 2026, í 30. skiptið. 

Ráðstefnan verður haldin í Sögu - húsnæði  Menntavísindasviðs Háskóla Íslands. 

Markmið ráðstefnunnar Menntakviku er að kynna og miðla því sem efst er á baugi í menntavísindum og tengdum sviðum hverju sinni. Menntavísindasvið býður öllum sem stunda rannsóknir í menntavísindum og tengdum fagsviðum til þátttöku á ráðstefnunni, sem og öllu starfsfólki annarra stofnana sem rannsaka eða vinna með viðeigandi málefni, að senda inn erindi á ráðstefnuna.

Ráðstefnan er öllum opin og ókeypis. 

Dagskrá Menntakviku 2026 mun samanstanda af hefðbundnum ráðstefnuerindum og vinnusmiðjum og verður lögð áhersla á að raða erindum í dagskrá þannig að sem flest geti tekið þátt. Aðalerindi ráðstefnunnar verða eftir hádegi á miðvikudeginum. 

www.menntakvika.hi.is

Share