Fjórir reyndir rannsakendur eru nú til taks fyrir rannsakendur MVS og geta veitt stuðning á mismunandi stigum rannsókna. Um er að ræða tilraunaverkefni sem hefur að markmiði að efla rannsóknir og fræðilegar birtingar sviðsfólks. Þau sem vantar stuðning og ráðgjöf eru hvött til að hafa samband á menntavisindastofnun@hi.is eða beint við rannsóknarráðgjafana (hér í stafrófsröð):
Anna Kristín Sigurðardóttir er prófessor við Menntavísindasvið. Hún hefur langa reynslu af rannsóknum um fjölbreytt efni innan menntavísinda, einkum hagnýtum rannsóknum sem unnar eru í samstarfi við vettvang, t.d. samþættum rannsóknar- og þróunarverkefnum. Viðfangsefnið varða t.d. forystu, skólaþróun og kennsluhætti. Hún beitir fjölbreyttum aðferðum, t.d. vettvangsathugunum og viðtalsaðferðum. Hún getur veitt ráðgjöf um flest stig rannsóknarferlisins, t.d. um samskipti við stjórnvöld og aðra þátttakendur, afmörkun og hönnun rannsóknarviðfangsefnis, gerð rannsóknarspurninga, skipulag og ritun rannsóknargreina og frágang handrita, ráðleggingar um viðbrögð við ritrýni, og miðlun og hagnýtingu niðurstaðna til vettvangs.
Hafdís Guðjónsdóttir er prófessor emerita við Menntavísindasvið. Hún hefur langa reynslu af rannsóknum innan menntavísinda meðal annars á starfi kennara og fagmennsku, kennsluháttum, menntun án aðgreiningar, fjölmenningu, kennaramenntun og þróun hennar. Hún hefur nýtt sér fjölbreyttar eigindlegar rannsóknaraðferðir eins og vettvangsathuganir, viðtöl og frásagnarrýni (narrative inquiry), en einnig aðferðir þátttökurannsókna eins og starfendarannsókna (action research) og starfstengdrar sjálfsrýni (self-study of teaching and teacher education practice). Hafdís hefur langa reynslu af ritstjórastörfum bæði hér á landi en einnig sem ritstjóri erlends tímarits. Hún getur veitt ráðgjöf varðandi flest stig við hönnun og skipulag rannsóknarverkefnis, ýmis vinnubrögð við gagnaöflun og gagnagreiningu, ritun ágrips og þátttöku á erlendum ráðstefnum, framsetningu, ritun og frágang handrita, og viðbrögð við ritrýni.
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson er prófessor emeritus við Menntavísindasvið. Hann hefur langa reynslu af rannsóknum um fjölbreytt efni innan menntavísinda svo sem námskrár- og kennslufræði, kynjafræði og skólasögu. Hann hefur beitt fjölbreyttum aðferðum í rannsóknum sínum, t.d. orðræðugreiningu, viðtalsaðferðum og vettvangsathugunum. Ingólfur getur veitt ráðgjöf um flest stig rannsóknarferlisins, t.d. um afmörkun og hönnun rannsóknarviðfangsefnis, gerð rannsóknarspurninga, samskipti við þátttakendur, skipulag og ritun rannsóknargreina, tímaritaval og frágang handrita, ráðleggingar um viðbrögð við ritrýni, og ritun blaðagreina upp úr birtum vísindagreinum.
Svanborg R Jónsdóttir er prófessor emerita við Menntavísindasvið. Hún hefur stundað menntarannsóknir í rúmlega 20 ár. Hún hefur gert rannsóknir sem snúast um sérsvið hennar, nýsköpunar- og frumkvöðlamennt og mismunandi birtingarmyndir þess kjarna sem þau svið byggja á, atbeina, sköpun/ skapandi áherslur. Flestar rannsóknir hennar hafa byggt á eigindlegri aðferðafræði, m.a. starfendarannsóknum, frásagnarrýni (narrative inquiry), starfstengdri sjálfsrýni í kennaramenntun (self-study in teacher education practice S-STEP), sjálfsþátttökurannsóknum (auto ethnography), notkun listrænna aðferða og myndtjáningaraðferðum. Hún getur veitt ráðgjöf um ýmsa þætti gagnaöflunar og túlkunaraðferða í eigindlegum rannsóknum, rannsóknaráætlana m.a. um að skrifa og móta tilgang, markmið og rannsóknarspurningar og ritun og frágang greina.