Rannsóknastofa um úrræði vegna aðlögunarerfiðleika barna á heimilum og í skólum
Framkvæmd verkefna á vegum rannsóknastofunnar fælist til dæmis í því að skoða úrræði eins og Parent Management Training/PMTO, sem er dæmi um prógramm í hæsta gæðaflokki á vettvangi heimila. Eitt verkefnanna væri að aðlaga og skoða hvernig mætti sinna enn frekar viðkvæmum hópum, eins og flóttafólki (Strengthening Parenting Among Refugees in Europe; SPARE), meðal annars með netþjónustu og rannsókn á því fyrir hvaða hóp það gæti virkað. Hlutverk skólanna gæti þá verið að vísa foreldrum í úrræðið og öðlast þekkingu á því sem fram fer. Annað dæmi væri að bjóða foreldrum á afskekktari svæðum (t.d. á Vestfjörðum eða Austfjörðum) PMTO hópúrræði á netinu og búa til ferli innleiðingar, samhliða rannsóknum á fýsileika úrræðis og verklags. Í þessu tilviki væri hlutverk skólanna sömuleiðis að vísa foreldrum í úrræðið og samhliða því að byggja upp þekkingu á því sem fram fer.
Framkvæmd beinnar þjónustu við skólana fælist til dæmis í athugun á samþættingu SMT-skólafærni/PBS og kennslu í félags- og tilfinningafærni með geðræktarnámsefninu Skref fyrir skref (Dialectical Behavior Therapy Skills Training for Emotional Problem Solving for Adolescents; DBT STEPS-A) varðandi almenna aðlögun allra nemenda í leik- og grunnskólum. Meðal annars þyrfti að rannsaka hvaða aldurshópi efnið hentar best, hvernig heppilegast er að þjálfun og handleiðsla kennara í kennslu efnisins fari fram og hver áhrif efnisins eru á hegðun og líðan nemenda.
Texti hér
Texti hér
SMT-skólafærni/PBS og kennslu í félags- og tilfinningafærni með geðræktarnámsefninu Skref fyrir skref (Dialectical Behavior Therapy Skills Training for Emotional Problem Solving for Adolescents; DBT STEPS-A).