Regluleg rannsóknamiðlun  

Í kjölfar þess að mennta- og barnamálaráðuneyti óskaði eftir upplýsingum um rannsóknir sem styrktar hafa verið af Menntarannsóknasjóði, gerði Menntavísindastofnun stutt yfirlit um þær rannsóknir sem er nú aðgengilegt á vef Menntavísindastofnunar.  

Í yfirlitinu er að finna upplýsingar um framvindu og niðurstöður úr nokkrum rannsóknarverkefnum Menntavísindasviðs Háskóla Íslands, þar á meðal sex rannsóknum sem hlutu styrk úr Menntarannsóknasjóði. Yfirlitið er í formi spjalda, eins fyrir hvert rannsóknarverkefni, þar sem einnig er vísað í IRIS rannsóknagátt og vef rannsókna sviðsins (www.mvsrannsoknir.hi.is) fyrir nánari upplýsingar. Markmið yfirlitsins er að gera niðurstöður rannsókna sýnilegri, ekki síst með því að draga fram hvernig þær geta nýst á vettvangi, í stjórnsýslu og við stefnumótun. Yfirlitið er liður í þeirri vegferð Menntavísindasviðs að fjölga miðlunarleiðum rannsókna sviðsins, brúa bilið á milli fræða og vettvangs og finna hagnýtum niðurstöðum farvegi til samfélagsins. Fleiri samantektir af þessu tagi munu fylgja í kjölfarið.  

regluleg rannsóknamiðlun
Share