Dyslexía (lesblinda) er sértækur námsvandi sem einkennist af erfiðleikum við orðalestur og/eða stafsetningu og hefur áhrif á nákvæmni, leshraða eða hvoru tveggja, en breytilegt eftir rithætti tungumála.
Þessir erfiðleikar eru misalvarlegir, en viðvarandi þrátt fyrir kennslu sem er árangursrík fyrir jafnaldra. Orsakir dyslexíu eru flóknar og fela í sér samspil erfðafræðilegra, taugalíffræðilegra og umhverfislegra áhrifa sem eiga sér stað allt þroskaskeiðið.
Undirliggjandi erfiðleikar í hljóðkerfis- og orðhlutaúrvinnslu eru algengir, en þó ekki alltaf til staðar. Snemmbúnir veikleikar í talmáli eru oft fyrirboðar læsisvanda.
Afleidd vandamál geta komið fram í erfiðleikum með lesskilning og dregið úr virkni við lestur og ritun sem getur síðan hindrað framfarir í máli, ritun, öflun þekkingar og haft áhrif á heildarnámsárangur. Þó að greining og markviss kennsla sé mikilvæg á öllum aldri er stuðningur við tungumál og læsi fyrir og á fyrstu árum leik- og grunnskóla sérstaklega árangursríkur.
Framantaldir erfiðleikar geta haft áhrif á líðan og dregið úr atvinnutækifærum. Þó að greining og markviss kennsla sé mikilvæg á öllum aldri, er stuðningur við mál og læsi fyrir og á fyrstu árum leik- og grunnskóla sérstaklega árangursríkur.
(Þýðing: Helga Sigurmundsdóttir og Steinunn Torfadóttir, 2025)
Adopted by the IDA Board of Directors on October 22, 2025. For more detailed context, please visit the 2025 IDA Definition Explanation, which includes the IDA Definition Presentation.