Hlutverk
Rannsóknarstofa um tónlist og menntun var stofnuð 20. febrúar 2026 að frumkvæði Helgu Rutar Guðmundsdóttur, prófessors í tónlistarfræðum á Menntavísindasviði.
Markmið rannsóknarstofu um tónlist og menntun er að efla og hvetja til rannsókna á sviði tónlistarmenntunar á öllum skólastigum. Stefnt er að því að rannsóknarstofa um tónlist og menntun geti stuðlað að umræðu um gildi og hlutverk tónlistarmenntunar í víðum skilningi.
Rannsóknarstofa um tónlist og menntun skapar vettvang fyrir meistara- og doktorsnema til að taka þátt í rannsóknum og að taka þátt í miðlun rannsóknaniðurstaðna. Stór þáttur í starfsemi rannsóknarstofu felst í að standa fyrir styrkumsóknum og að leiða saman rannsakendur, háskólanema og hagaðila í mótun rannsóknarverkefna bæði innlendra og erlendra samstarfsverkefna þvert á stofnanir samfélagsins.
Rannsóknarstofa um tónlist og menntun stefnir að því að miðla rannsóknum og að hvetja til faglegrar umræðu um málefni tónlistarmenntunar í samfélaginu með þátttöku í málþingum og ráðstefnum auk þess að standa fyrir opinberum málþingum um tónlist og menntun.
Hagaðilar sem koma að rannsóknarstofunni eru Tónmenntakennarafélag Íslands (TKÍ), Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (TK) auk verkefnisins Syngjandi skóla undir stjórn Hörpu Þorvaldsdóttur.
Stjórn
Helga Rut Guðmundsdóttir, prófessor við MVS HÍ | helgarut@hi.is
Adam J. Switala, doktorsnemi við HÍ
Elín Anna Ísaksdóttir, LHÍ
Sigrún Grendal, FT
Kolbrún Hulda Tryggvadóttir, TKÍ