Stjórn og hlutverk - RannMennt

RannMennt er rannsóknarstofa um menntastefnu, alþjóðavæðingu og félagslegt réttlæti.

Meginmarkmið rannsóknarstofunnar er að skapa vettvang fyrir hóp fræðimanna sem stundar gagnrýnar rannsóknir (e. critical education research) á sviðum er varða:

  • menntastefnufræði
  • félagsfræði menntunar
  • samspil fjölmenningarfræða
  • kynjafræða
  • hinseginfræða
  • fötlunarfræða

í tengslum við félagslegt réttlæti í uppeldi og menntun

Lögð er áhersla á að skoða áhrif samtvinnunar ólíkra þátta, svo sem stéttar, kyngervis, kynhneigðar, uppruna og fötlunar á valdatengsl og félagslegt réttlæti í uppeldi og menntun.

Markmið stofunnar er að efla nýtt fræðasvið í menntarannsóknum á Íslandi á breiðum grunni; miðla þekkingu, taka þátt í umræðu, valdefla fagfólk og hagsmunaaðila á vettvangi menntunar, og skapa verðandi fræðimönnum, meðal annars meistara- og doktorsnemum, vettvang fyrir þátttöku í gagnrýnum menntarannsóknum.

 

Megináherslur í rannsóknum eru:

  • Að greina menntastefnur í alþjóðlegu samhengi,
    áhrif markaðs- og alþjóðavæðingar og inngildandi menntunar (inclusive education) á stefnumótun, uppeldi og skólastarf. Stofan er vettvangur fyrir og tekur þátt í umræðu sem varða þessi viðfangsefni. 
  • Að rýna í samspil fjölmenningarfræða, kynjafræða,
    hinseginfræða og fötlunarfræða í tengslum við félagslegt réttlæti í uppeldi og menntun.

Lögð er áhersla á að skoða áhrif samtvinnunnar ólíkra þátta, svo sem

  • stéttar, kyngervis, kynhneigðar, uppruna, aldurs og fötlunar á valdatengsl og félagslegt réttlæti í uppeldi og menntun.

Formaður

  • Berglind Rós Magnúsdóttir, formaður stjórnar RannMennt, brm@hi.is

Stjórn

  • Gunnlaugur Magnússon - dósent við Uppsala Háskóla 
  • Ólafur Páll Jónsson - prófessor
  • Eva Harðardóttir - aðjúnkt
  • Brynja Elísabet Halldórsdóttir - dósent
  • Jón Ingvar Kjaran - prófessor
  • Hermína Gunnþórsdóttir - prófessor við Háskólann á Akureyri
  • Gerður G Óskarsdóttir prófessor - Emeritus
  • Sigrún Ólafsdóttir prófessor