Stofnfundur Rannsóknarstofu um tónlist og menntun var haldinn á Sögu, föstudaginn 20. febrúar kl. 13:00, að frumkvæði Helgu Rutar Guðmundsdóttur prófessors í tónlistarfræðum á Menntavísindasviði. Á fundinn voru boðaðir nemendur á Menntavísindasviði í rannsóknatengdu námi (M.Ed. og Ph.D.) með áherslu á tónlist og menntun, auk fulltrúa frá Intelligent Instruments Lab sem starfar við Háskóla Íslands. Listaháskóla Íslands var boðið að senda fulltrúa sinn á stofnfundinn. Markmið fundarins var formleg stofnun rannsóknarstofu um tónlist og menntun auk kosningar stjórnar stofunnar sem mun skila árskýrslu árlega til Menntavísindastofnunar sem einnig mun hýsa heimasíðu rannsóknarstofunnar. Stjórn rannsóknarstofunnar mun funda minnst árlega og móta stefnu stofunnar og skipuleggja viðburði á vegum hennar.
Hagaðilar sem koma að rannsóknarstofunni eru Tónmenntakennarafélag Íslands (TKÍ), Félag kennara og stjórnenda í tónlistarskólum (TK) auk verkefnisins Syngjandi skóla undir stjórn Hörpu Þorvaldsdóttur.
Markmið rannsóknarstofu um tónlist og menntun er að efla og hvetja til rannsókna á sviði tónlistarmenntunar á öllum skólastigum. Stefnt er að því að rannsóknarstofa um tónlist og menntun geti stuðlað að umræðu um gildi og hlutverk tónlistarmenntunar í víðum skilningi.
Rannsóknarstofa um tónlist og menntun skapar vettvang fyrir meistara- og doktorsnema til að taka þátt í rannsóknum og að taka þátt í miðlun rannsóknaniðurstaðna.
Stór þáttur í starfsemi rannsóknarstofu felst í að standa fyrir styrkumsóknum og að leiða saman rannsakendur, háskólanema og hagaðila í mótun rannsóknarverkefna bæði innlendra og erlendra samstarfsverkefna þvert á stofnanir samfélagsins.
Rannsóknarstofa um tónlist og menntun stefnir að því að miðla rannsóknum og að hvetja til faglegrar umræðu um málefni tónlistarmenntunar í samfélaginu með þátttöku í málþingum og ráðstefnum auk þess að standa fyrir opinberum málþingum um tónlist og menntun.
Á fundinn voru mættir eftirfarandi:
Helga Rut Guðmundsdóttir, prófessor við MVS HÍ
Natalia Duarte Jeremías, doktorsnemi við MVS HÍ
Adam J. Switala, doktorsnemi við HÍ
Fríða Dís Guðmundsdóttir, M.Ed. nemi við MVS HÍ
Halldór Arnar Úlfarsson, Intelligent Instruments Lab, HÍ
Elín Anna Ísaksdóttir, LHÍ
Ingimar Waage, LHÍ
Harpa Þorvaldsdóttir, Syngjandi skóli - Reykjavíkurborg
Dagný Arnalds, FT
Sigrún Grendal, FT
Kolbrún Hulda Tryggvadóttir, TKÍ