Rannsóknastofa um árangursprófanir og innleiðingu forvarna- og stuðningsúrræða vegna aðlögunarerfiðleika barna á leik- og grunnskólaaldri á vettvangi heimila og skóla hefur verið stofnuð hjá Menntavísindasviði Háskóla Íslands í febrúar 2026.

Stofnendur rannsóknarstofunnar eru Margrét Sigmarsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið og sálfræðingur, Bergljót Gyða Guðmundsdóttir, prófessor við Menntavísindasvið og Edda Vikar Guðmundsdóttir, sálfræðingur.

Markmiðið með stofnun fyrirhugaðrar rannsóknastofu er að skapa sterkan vettvang fyrir úrræði af þessum toga í tengslum við leik- og grunnskólasamfélagið. Í dag er vinna hérlendis með þessum hópi, börnum með hegðunar- og tilfinningaerfiðleika, handahófskennd og efla þarf skilning og samstillingu á milli kerfa. Markmiðið er einnig að stuðla að skilningi á því hvað felst í gæðaúrræðum á þessu sviði og hvers konar rannsóknir þarf að gera til að ganga úr skugga um árangur og viðeigandi aðlögun miðað við íslenskar aðstæður. Að sama skapi verður markmið rannsóknastofunnar að gera rannsóknir á innleiðingu og sjá til þess að slík þekking verði til í samfélaginu.

 

 

Share