Til að létta undir með umsækjendum um styrki úr Rannsóknasjóði Rannís fyrir árið 2027 hefur Menntavísindastofnun þróað reiknivél til að auðvelda fjárhagsáætlunargerð fyrir styrkumsóknir.
Hér á eftir fer einnig helsti munur á handbókum Rannís fyrir umsóknir styrkárin 2026 og 2027, auk þess sem fram kemur á fyrstu blaðsíðu handbókarinnar í ár. (Sjá einnig handbók fyrra árs):
- Matskvarði fer frá A-D yfir í 1-7 og er hvert matsstig skilgreint. Því mun verða skýrara hvernig er ákvarðað hverjar af efstu umsóknum fá styrk og hverjar ekki.
- Hámarksstyrkur verkefnastyrks (án overhead) er 63.752.000 kr. og hækkar um 2.452.000 á milli ára.
- Verkefnisstjórar (PL) öndvegis- og verkefnastyrkja þurfa að vera í starfi hjá HÍ við umsókn og allt styrktímabilið þannig að enginn vafi sé á hvar verkefni er hýst. Undirstrika þarf vægi leiðtoga verkefnisins, cv má vera 3 bls. í stað tveggja áður.
- Draga þarf fram mikilvægi og áhrif rannsóknarverkefnisins.
- Alþjóðleg áhersla er meiri, þ.e. meiri kröfur um að verkefni séu samkeppnishæf á alþjóðlegum vettvangi og skili niðurstöðum á alþjóðlegum skala.
- Mikilvægt er að hafa mjög skýra rannsóknarspurningu, tengja aðferðafræði við hana á skýran hátt, og leggja áherslu á nýnæmi rannsóknarinnar strax í upphafi.
Fyrir ítarlegri lýsingar á því sem krafist er í umsóknum er vísað til Handbókar Rannsóknasjóðs Rannís fyrir árið 2027.
Ef spurningar vakna má senda á Kristínu Harðardóttur, rannsóknastjóra Menntavísindasviðs, krishar@hi.is