Rannsóknir skapa verðmæta þekkingu sem getur haft veruleg áhrif á samfélagið. Til að það gerist þarf þó að tryggja að niðurstöðurnar nái til þeirra sem geta nýtt þær. Við hvetjum rannsakendur á Menntavísindasviði til að huga sérstaklega að sýnileika rannsókna sinna þannig að þekkingin skili sér út í samfélagið og hafi raunveruleg áhrif. Þetta er ekki síst mikilvægt á tímum upplýsingaóreiðu en þar er virk vísindamiðlun og gott aðgengi að upplýsingum mikilvægt mótsvar. Aukinn sýnileiki rannsókna er einmitt eitt af markmiðum starfsáætlunar sviðsins.  

Menntavísindastofnun heldur utan um vefsíðuna mvsrannsoknir.hi.is en þar eru birtar upplýsingar um styrkt rannsóknarverkefni sviðsins. Markmiðið er að bæta við þær upplýsingar sem þar birtast þannig að nálgast megi niðurstöður rannsókna. Á vefsíðunni er jafnframt hægt að nálgast yfirlit og flokka rannsóknir sviðsins eftir rannsakendum, styrktarsjóðum o.fl. 

Það er mikilvægt að uppfæra reglulega vefsíðu af þessu tagi þannig að efni um framvindu rannsóknar og niðurstöður birtist jafnóðum svo hægt sé að upplýsa vettvang, hagaðila og stjórnvöld og þannig breiða út niðurstöður og auka áhrif rannsóknarinnar.   

Hægt er að fara ýmsar leiðir til þess að miðla niðurstöðum og nauðsynlegt að nota fleiri en eina: 

  • ORCID – auðveldar sjálfvirka skráningu á útgefnu efni og opnar á mögulegar tengingar á milli gagnagrunna - https://orcid.org/. Hér má sjá leiðarvísi sem fjallar um hvernig ORCID getur nýst rannsakendum -  https://leidarvisar.is/orcid/nytist 

  • www.mvsrannsoknir.hi.is – hægt að deila hlekk á þessa síðu til að koma upplýsingum á framfæri við hagaðila – athuga að hafa nýjustu upplýsingar þar. 

  • Senda efni til miðlunar á markaðs- og samskiptastjóra sviðsins.  

  • Halda málþing /ráðstefnur til að miðla efni og skapa umræður fyrir samstarfsfólk, rannsakendur, hagaðila og vettvang.  

  • Grípa tækifærið og taka þátt í viðtölum eða samtölum á opinberum vettvangi um málefni sem þið eruð að rannsaka og eruð sérfróð um.  

Hafðu samband við okkur hjá Menntavísindastofnun menntavisindastofnun@hi.is ef það er kominn tími til þess að uppfæra niðurstöður og við getum aðstoðað. Við vinnum einnig náið með Mörtu Goðadóttur, markaðs- og samskiptastjóra sviðsins um miðlun rannsókna og minnum á að senda henni efni til miðlunar.  

Share