Við þökkum fyrirlesurum og þátttakendum fyrir komuna á Menntakviku 2026 sem nú var haldin í 30. skiptið! 

Hvert einasta framlag var mikilvægt til að kynna öll þau fjölbreyttu rannsóknar- og þróunarverkefni sem tengjast menntamálum. Menntakvika er árleg uppskeruhátíð og vettvangur fyrir fræðafólk, kennara, starfsfólk skóla og stofnana að koma saman og miðla upplýsingum sín á milli.  

Þátttakan í ár var mjög góð en boðið var upp á hátt í 300 erindi í 70 málstofum sem öllum var streymt líka. Alls voru samtals um 2.800 heimsóknir í málstofur á staðnum og í streymi. Um 100 manns komu á aðalmálstofuna á miðvikudaginn, auk 400 innlita í gegnum streymi á vef.

Upptöku frá aðalmálstofu Menntakviku: Hvernig birtast menntarannsóknir í opinberri umræðu? má nálgast hér.

Við hvetjum ykkur til þess að skoða svipmyndir frá Menntakviku inni heimasíðu ráðstefnunnar.

Við vonumst til þess að sjá ykkur sem flest á Menntakviku að ári!

Menntakvika
Menntakvika2026
Menntakvika
Share