Mennta og barnamálaráðuneytið hefur falið Menntavísindastofnun Háskóla Íslands umsjón með TIMSS 2027 – alþjóðlegri rannsókn sem metur árangur nemenda í stærðfræði og náttúrufræði á heimsvísu.

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ, undirrituðu samning um undirbúning og framkvæmd TIMSS-rannsóknarinnar á Íslandi 2027 í ráðuneytinu í febrúar 2026.

Ellen Dröfn Gunnarsdóttir er rannsóknarstjóri TIMSS, Ólöf Ragna Einarsdóttir er aðstoðarrannsóknarstjóri og Fríða Þorkelsdóttir er verkefnastjóri innan Menntavísindastofnunar HÍ.

Rannsóknin verður lögð fyrir nemendur í öllum skólum landsins í 5. og 9. bekk árið 2027 þar sem nemendur svara spurningum og leysa verkefni í stærðfræði og náttúrufræði. Auk þess svara nemendur, kennarar og skólastjórnendur spurningalistum um námsumhverfi og kennsluaðferðir. Forprófun fer fram vorið 2026 þar sem um 30 skólar taka þátt.

TIMSS-rannsóknin (Trends in International Mathematics and Science Study), metur þekkingu og færni nemenda í 10 og 14 ára nemenda í stærðfræði og náttúrufræði. Markmið rannsóknarinnar er að:

  • Bera saman námsárangur milli landa
  • Greina þróun í námsárangri yfir tíma
  • Kanna þætti sem hafa áhrif á nám, svo sem kennsluaðferðir, námskrá og viðhorf nemenda

International Association for the Evaluation of Educational Achievement (IEA) stendur að rannsókninni og hefur hún verið framkvæmd á fjögurra ára fresti frá 1995.

Frekari upplýsingar um TIMSS-rannsóknina á vef IEA

 

Mikilvægi rannsóknarinnar

Niðurstöður TIMSS veita stjórnvöldum og skólum upplýsingar til að:

  • Meta styrkleika og veikleika í námi
  • Þróa kennsluaðferðir og námskrá
  • Setja markmið fyrir framtíðina

Með þátttöku í rannsókninni fjölgar mælikvörðum á stöðu íslenskra nemenda í alþjóðlegum samanburði en til langs tíma hefur PISA-rannsóknin verið eini slíki mælikvarðinn.

 

Rannsóknarstjóri

Aðstoðarrannsóknarstjóri

Share