Hér er það helsta sem við viljum vekja athygli á í tengslum við rannsóknir á Menntavísindasviði þessa dagana.
Forprófun TIMSS er hafin
Nú er forprófun TIMSS verkefnisins hafin og stendur til loka apríl. Á 6. hæð í Sögu er stundum ys og þys þegar umsjónaraðilar prófanna úti í 30 grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu og næsta nágrenni koma saman eftir daginn. Prófið er lagt fyrir nemendur 5. og 9. bekkja skólanna og snýst um að meta árangur í stærðfræði og náttúrufræði. Forprófunin er mikilvægur áfangi í framkvæmd verkefnisins sem mennta- og barnamálaráðuneytið hefur falið Menntavísindastofnun en fyrirlögn í öllum grunnskólum landsins verður vorið 2027.
Meira um TIMSS hér https://menntavisindastofnun.hi.is/is/timss
Kall eftir ágripum - Menntakvika 2026
Búið er að opna fyrir innsendingu ágripa fyrir Menntakviku. Menntakvika verður haldin á miðvikudegi og fimmtudegi þetta árið þann 30. september – 1. október 2026 og er þetta í 30. skiptið sem ráðstefnan verður haldin og er sannkölluð uppskeruhátíð menntavísinda.
Við hvetjum öll til að senda erindi en hægt er að senda inn einstaklingserindi, skipulagða málstofu eða vinnusmiðju um þær rannsóknir eða þróunarverkefni sem þið viljið miðla áfram.
Nánari upplýsingar um Menntakviku er að finna á heimasíðu Menntakviku.
Skilafrestur ágripa er 20. júní 2026.
Rannsóknaþjónusta Landsbókasafnsins
Við viljum benda ykkur á Rannsóknarþjónustu Landsbókasafns Íslands - Háskólabókasafns sem er reglulega með vefkynningar fyrir rannsakendur og doktorsnema, meðal annars um val á fræðitímaritum, heimildaleit, birtingar í opnum aðgangi, Opin Vísindi og Opinn aðgang ásamt ýmsum gagnlegum upplýsingum.
Gunnhildur K. Björnsdóttir er fagstjóri rannsóknaþjónustunnar gunnhildur.k.bjornsdottir@landsbokasafn.is
Hægt er að gerast áskrifandi að fréttum frá Rannsóknaþjónustu Landsbókasafnsins hér+
NETLA
Nýjar greinar birtast reglulega á vef Netlu, netla.hi.is. Hér eru þær allra nýjustu:
- Innleiðing réttinda barna í daglegt leikskólastarf. Höfundar eru Anna Magnea Hreinsdóttir og Hrönn Pálmadóttir.
- Persónulegar frásagnir fjöltyngdra barna, málnotkun þeirra og umræðuefni, í samanburði við eintyngd börn. Höfundur er Jóhanna Thelma Einarsdóttir.
Sérrit Netlu 2026 - Íslenska æskulýðsrannsóknin II
Út er komið sérrit á vegum Netlu sem tileinkað er Íslensku æskulýðsrannsókninni (ÍÆ). Í ritinu sem er það síðara af tveimur, eru tvær ritrýndar greinar ásamt inngangi sem Ragný Þóra Guðjohnsen, faglegur stjórandi ÍÆ, skrifar. Ritstjórar sérritsins eru Kristján Ketill Stefánsson og Valgerður S. Bjarnadóttir. Hér má kynna sér ritið: https://netla.hi.is/islenska-aeskulydsrannsoknin-ii/
Ritrýndar greinar eru þessar:
Volcanic Eruption and Disruption: Youth Well-being After the Grindavík Evacuation in Iceland
Höfundar eru David Reimer, Juuso Repo og Kolbrún Þ. Pálsdóttir.
Brotthvarf úr framhaldsskóla: Mismunabreytur í Íslensku æskulýðsrannsókninni
Höfundar eru Kristín Björnsdóttir og Hjördís Birna Ingvadóttir.
Nýir þættir í Menntavísindavarpinu
Gildi útiveru og hreyfingar og hlutverk og verkefni tengiliða við innleiðingu farsældarlaga
Díana Ívarsdóttir og Emilía Örlygsdóttir brautskráðust nýverið frá Menntavísindasviði Háskóla Íslands og kynntu lokaverkefni sín á málþingi meistaranema í lok janúar. Emilía lauk meistaranámi í menntunarfræði leikskóla og ber meistaraverkefni hennar heitið: „Við verðum alltaf sterkari og sterkari“ Gildi mikillar útiveru, markvissrar hreyfingar og náms í nærumhverfinu“. Díana lauk meistaranámi í Starfstengdri leiðsögn og kennsluráðgjöf og heitir meistaraverkefni hennar: „Við erum enn þá að fóta okkur“ Hlutverk og verkefni tengiliða við innleiðingu farsældarlaga. Díana og Emilía spjalla hér um meistaraverkefni sín, niðurstöður og hvernig vinna megi áfram með þær.
Efling orðaforða barna er fyrst og fremst jöfnunartækifæri
Sigríður Ólafsdóttir, dósent á Menntavísindasviði Háskóla Íslands, vinnur þessa stundina að rannsókninni Kennsluleiðbeiningar með námsorðaforða: Innleiðing lista yfir íslenskan námsorðaforða og gæðatexta með námsorðaforða í læsismenntun grunnskólanema. Listinn gefur upplýsingar um námsorð sem nemendur á mismunandi aldri þurfa að þekkja til að geta skilið, rætt og skrifað um það sem þeir fást við í námi. Sigríður ræðir í þættinum um eflingu orðaforða barna, orðaforða sem jöfnunartækifæri og árangursríka kennsluhætti með námsorðaforða.
Í lok árs 2026 verður kennsluhefti og nemendahefti gert aðgengilegt fyrir skóla til að nýta sér í kennslu. Nánar um rannsóknina
Heittrúuð starfendarannsóknakona
Ingibjörg Ósk Sigurðardóttir, dósent í leikskólakennarafræði við Deild kennslu og menntunarfræði á Menntavísindasviði, er að eigin sögn heittrúuð starfendarannsóknakona. Hún trúir á þá aðferð, þegar kennarinn er stöðugt að skoða sig í starfi og finna leiðir til að bæta sig. Ingibjörg Ósk hefur starfað mikið við slíkar rannsóknir, komið að innleiðingu raunfærnimats í leikskólakennarafræði HÍ og m.a. rannsakað launað starfsnám í leikskólakennarafræði. Hér ræðir hún rannsóknirnar og sýn sína á kennslu leikskólakennarafræði.
„Það er framtíðarstarf að kenna íslensku sem annað tungumál“
Renata Emilsson Pesková, dósent í kennslufræði menntunar fyrir alla á Menntavísindasviði mætti í Menntavísindavarpið og ræddi m.a. fjölbreyttar leiðir til að verða ÍSAT kennari en vaxandi þörf er fyrir kennara með sérhæfingu í kennslu íslensku sem annað mál í skólakerfinu. Í Menntavísindavarpinu ræðir hún fjölbreytt námstækifæri til að verða ÍSAT kennari og rannsókn sem hún vinnur um þessar mundir ásamt Branislav Bédi, sem byggir á könnun um hæfni og starfshætti kennara í íslensku sem öðru tungumáli (ÍSAT) sem var lögð fyrir haustið 2025.
_____________________________________________________________________
Við getum aðstoðað þig
Við minnum á beiðnakerfi Menntavísindastofnunar og vefinn okkar þar sem ýmsar gagnlegar upplýsingar er að finna.
IRIS, ORCID og sýnileiki rannsókna
Hafðu samband við Önnu Bjarnadóttur (annabjarnadottir@hi.is) ef þig vantar aðstoð við að tengja efni í gegnum ORCID og IRIS rannsóknargátt.
Útgefið efni
Nýtt útgefið efni Menntavísindasviðs má nálgast í rannsóknagáttinni - IRIS
Listi yfir rannsóknarverkefni innan Menntavísindasviðs er að finna á https://mvsrannsoknir.hi.is/
Allar birtar greinar frá Netlu og TUM eru aðgengilegar í opnum aðgangi á heimasíðum ritanna Netla.hi.is og TUM.hi.is