COVID-19 Research

In the spring of 2020, surveys on school work, working conditions, studies and well-being during the operation of COVID-19 were conducted.

Questionnaires were administered to administrators at all school levels and to the staff of the University of Iceland.

Pre-school

Menntavísindasvið Háskóla Íslands stóð fyrir könnun á vormánuðum 2020 á því hvaða áhrif COVID-19 hafði haft á starf og vinnuaðstæður starfsfólks leikskóla.

Einn spurningalisti var sendur á hvern leikskóla og voru leikskólastjórar beðnir um að svara honum.

Covid-19 faraldurinn hafði mikil áhrif á allt skólastarf á Íslandi. Samkomubann var sett á hér á landi þann 16. mars sem raskaði að miklu leyti leikskólastarfi. Þetta hafði meðal annars þær afleiðingar að starfs leikskóla var með breyttum hætti.  Ekki var einhlítt með hvaða hætti starfsemi skyldi aðlöguð að þessum breyttu aðstæðum, hvort það hafði áhrif á mætingu barna og þá hvernig.  Þessir fordæmalausu tímar kölluðu á fordæmalausar ráðstafanir. Til þess að kanna áhrif Covid-19 á leikskólastarf réðst Menntavísindasvið ásamt Menntavísindastofnun í að senda út könnun til allra leikskóla á landinu. Hér verður greint frá niðurstöðum könnunar sem send var á netföng 248 leikskóla; greint verður frá því hér hvaða áhrif Covid-19 hafði á leikskólastarf.

Hér má skoða skýrsluna í heild

Menntavísindasvið Háskóla Íslands stóð fyrir könnun á vormánuðum 2020 á því hvaða áhrif COVID-19 hafði haft á starf og vinnuaðstæður starfsfólks grunnskóla og stjórnendur frístundastarfs.

Spurningalisti var sendur á allt starfsfólk grunnskóla og stjórnendur frístundastarfs.

Menntavísindasvið Háskóla Íslands stóð fyrir könnun á vormánuðum 2020 á því hvaða áhrif COVID-19 hafði haft á starf og vinnuaðstæður starfsfólks framhaldsskóla.

Spurningalisti var sendur á kennara og skólastjórnendur.

Hér má nálgast skýrslu með niðurstöðum úr könnuninni - í fullri lengd

Hér má nálgast skýrslu með niðurstöðum úr könnuninni - stytt útgáfa

Menntavísindasvið Háskóla Íslands stóð fyrir könnun á vormánuðum 2020 á því hvaða áhrif COVID-19 hafði haft á nám og líðan nema í Háskóla Íslands.

Spurningalisti var sendur á alla nemendur Háskóla Íslands.

Hér má nálgast niðurstöður könnunarinnar

Menntavísindasvið Háskóla Íslands stóð fyrir könnun á vormánuðum 2020 á því hvaða áhrif COVID-19 hafði haft á starf og vinnuaðstæður starfsfólks Háskóla Íslands.

Spurningalisti var sendur á allt starfsfólk.

Í ljós kom að nærri helmingur starfsfólks fann fyrir auknu álagi í fyrstu bylgju kórónuveirufaraldursins í vor. Vinnuaðstæður fólks heima fyrir voru misjafnar og um þriðjungur starfsfólks var ekki með sér vinnuherbergi á heimili sínu. Þá gekk samhæfing vinnu og einkalífs verr hjá fólki með börn á heimilinu og akademísku starfsfólki.

Hér má nálgast app með niðurstöðum könnunarinnar 

Hér má nálgast samantekt með niðurstöðum könnunarinnar

Hér má sjá skýrslu með niðurstöðum könnunarinnar

 

Á haustmisseri var svo sendur út annar spurningalisti til starfsfólks Háskóla Íslands þar sem aftur var spurt um áhrif COVID-19 á starf og vinnuaðstæður þeirra.

Hér má nálgast app með niðurstöðum úr þeirri könnun