Mennta og barnamálaráðuneytið hefur falið Menntavísindastofnun Háskóla Íslands umsjón með TIMSS 2027 – alþjóðlegri rannsókn sem metur árangur nemenda í stærðfræði og náttúrufræði á heimsvísu.
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, Silja Bára R. Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, og Kolbrún Þ. Pálsdóttir, forseti Menntavísindasviðs HÍ, undirrituðu samning um undirbúning og framkvæmd TIMSS-rannsóknarinnar á Íslandi 2027 í ráðuneytinu í febrúar 2026.
Ellen Dröfn Gunnarsdóttir er rannsóknarstjóri TIMSS, Ólöf Ragna Einarsdóttir er aðstoðarrannsóknarstjóri og Fríða Þorkelsdóttir er verkefnastjóri innan Menntavísindastofnunar HÍ. Sjá nánar.
Rannsóknin verður lögð fyrir nemendur í öllum skólum landsins í 5. og 9. bekk árið 2027 þar sem nemendur svara spurningum og leysa verkefni í stærðfræði og náttúrufræði. Auk þess svara nemendur, kennarar og skólastjórnendur spurningalistum um námsumhverfi og kennsluaðferðir. Forprófun fer fram vorið 2026 þar sem um 30 skólar taka þátt.
TIMSS-rannsóknin (Trends in International Mathematics and Science Study), metur þekkingu og færni nemenda í 10 og 14 ára nemenda í stærðfræði og náttúrufræði. Markmið rannsóknarinnar er að:
- Bera saman námsárangur milli landa
- Greina þróun í námsárangri yfir tíma
- Kanna þætti sem hafa áhrif á nám, svo sem kennsluaðferðir, námskrá og viðhorf nemenda
International Association for the Evaluation of Educational Achievement (IEA) stendur að rannsókninni og hefur hún verið framkvæmd á fjögurra ára fresti frá 1995.
Frekari upplýsingar um TIMSS-rannsóknina á vef IEA
Mikilvægi rannsóknarinnar
Niðurstöður TIMSS veita stjórnvöldum og skólum upplýsingar til að:
- Meta styrkleika og veikleika í námi
- Þróa kennsluaðferðir og námskrá
- Setja markmið fyrir framtíðina
Með þátttöku í rannsókninni fjölgar mælikvörðum á stöðu íslenskra nemenda í alþjóðlegum samanburði en til langs tíma hefur PISA-rannsóknin verið eini slíki mælikvarðinn.