Námskeið um einingakubba og stærðfræði í leikskólastarfi

Á námskeiðinu verður lögð áhersla á að þáttakendur kynnist því hvernig daglegt starf í leikskólanum getur verið uppspretta viðfangsefna sem tengjast stærðfræði.

Í frjálsum leik og skipulögðu starfi takast börnin á við verkefni þar sem beita þarf stærðfræði.

Þáttakendur læra að greina þau tilefni sem gefast til nánari úrvinnslu og kynnast fjölbreytilegum vinnubrögðum sem nota má til að hjálpa börnunum til að þróa skilning sinn og færni á sviði stærðfræði.  

  • Námskeiðið er 20 stundir

Viðfangsefni

Fjallað verður sérstaklega um byggingarleiki og einingakubbar (unit blocks) kynntir í því samhengi.

Þá verður fjallað um hvernig samþætta má vinnu með stærðfræði við tónlist, myndlist, hreyfingu, sögur, ljóð og frásagnir barnanna.

Sjónum verður sérstaklega beint að:

  • mynstri
  • flokkun
  • röðun
  • hlutföllum
  • lögun
  • stærð
  • fjölda
  • rökhugsun
  • skilningi á hugtökum

 

Umsjón

Mynd af Jónína Vala Kristinsdóttir Jónína Vala Kristinsdóttir Fyrrverandi dósent 5255511 joninav [hjá] hi.is