Rannsóknarstofa um námskrá, námsmat og námsskipulag (NNN)
Rannsóknastofan leggur áherslu á rannsóknir á sínu sviði, að miðla þekkingu, stuðla að starfsþróun er tengist sviðinu.
Námskrárþróun og námsmat er helsta viðfangsefnið og skapar stofan bæði verðandi og starfandi fræðimönnum vettvang fyrir þátttöku í rannsóknum.
Rannsóknastofan hvetur til umræðu um námskrár, námsmat og annað námsskipulag.

Helstu viðfangsefni rannsóknastofunnar snerta:
- Námskrár, námskrárþróun og námskrárgerð á öllum stigum skólakerfisins
- Mat á námi og kennslu á öllum skólastigum
- Skipulag náms og kennslu á öllum skólastigum
Starfsemi
Rannsóknastofa um námskrá, námsmat og annað námsskipulag (NNN) var stofnuð 19. janúar 2012. Stofnendur voru um 27. Á stofnfundinn mættu stafsmenn af Menntavísindasviði Háskóla Íslands og starfandi kennarar í grunn- og framhaldsskólum.
Í samræmi við reglur um rannsóknastofur við Menntavísindasvið leggur NNN Rannsóknastofa áherslu á rannsóknir á sínu sviði, að:
- miðla þekkingu
- stuðla að starfsþróun er tengist sviðinu
- námskrárþróun og námsmat
- skapa bæði verðandi og starfandi fræðimönnum vettvang fyrir þátttöku í rannsóknum
Rannsóknastofan hefur einnig lagt sig fram um að örva umræðu um námskrár, námsmat og annað námsskipulag. Hún hefur auk þess tekið að sér verkefni fyrir aðila utan Menntavísindasviðs.
Formaður
- Dr. Gunnar E. Finnbogason. Formaður, s. 525 5367
Stjórn
- Jóhanna Karlsdóttir, johannak@hi.is
- Meyvant Þórólfsson, meyvant@hi.is
Nordisk Tidskrift för Allmän Didaktik (NOAD)
- Norrænt samstarfsverkefni um útgáfu nýs rafræns tímarits sem hefur það að markmiði að fjalla um námskrárleg málefni, námsmat og námsskipulag, sem endurspeglar rannsóknir og þróun náms og kennslu í almenna skólakerfinu á Norðurlöndum og að nokkru marki í Evrópu
Rætur nýsköpunar- og frumkvöðlamenntar í íslenskum námskrám og skólamálaumræðu og Að uppfæra Ísland
Sýn stjórnenda íslenskra framhaldsskóla á nýsköpunar- og frumkvöðlamennt og framkvæmd námssviðsins í námskrárfræðilegu ljósi
- Samstarf við Rannsóknastofu um skapandi skólastarf, þar sem staða nýsköpunar- og frumkvöðlamenntar hefur verið rannsökuð.
Tvær greinar um efnið birtar í Netlu.
Meðal viðfangsefna frá stofnun stofunnar hafa verið:
- Fundir um aðalnámskrár allra skólastiga
- Málþing í samstarfi við þrjár aðrar rannsóknastofur undir yfirskriftinni Álitamál í kennslu frá sjónarhorni fjögurra námsgreina
- Samstarf um þróun námsmats með Kennslumiðstöð Háskóla Íslands um námskeið fyrir háskólakennara um gerð prófa
- Norrænt samstarfsverkefni um útgáfu nýs rafræns tímarits, Nordisk Tidskrift för Allmän Didaktik (NOAD), sem hefur það að markmiði að fjalla um námskrárleg málefni, námsmat og námsskipulag, sem endurspeglar rannsóknir og þróun náms og kennslu í almenna skólakerfinu á Norðurlöndum og að nokkru marki í Evrópu
- Samstarf við Rannsóknastofu um skapandi skólastarf, þar sem staða nýsköpunar- og frumkvöðlamenntar hefur verið rannsökuð. Tvær greinar um efnið birtar í Netlu:
- Rannsókn á opinberum stefnuritum um náttúruvísindi fyrir alla í skóla fyrir alla
- Að skapa vettvang fyrir meistara- og doktorsnema til að taka þátt í rannsóknum á námskrám, námsmati og námsskipulagi
- Samstarf og rannsóknir sem beinast að námsaðstæðum bráðgerra barna
- Rannsóknir á ólíkum birtingarmyndum námskrár, meðal annars hinni opinberu skrifuðu námskrár, hinni duldu námskrá, núllnámskrá o.fl.