Sjálfbærni í kennslugreinum grunn- og framhaldsskóla

Námskeiðið er fyrir kennara í grunn- eða framhaldsskólum.

Kynntur verður grunnþátturinn sjálfbærni eins og hann birtist í nýrri aðalnámskrá grunn- og framhaldsskóla með áherslu á hugtakið geta til aðgerða.

Þátttakendur rýna í hvaða áhrif hugmyndir um sjálfbærni hafa á kennslugreinar þeirra út frá vali á viðfangsefnum og kennsluaðferðum.

Rætt verður hvað kennslugreinar þeirra geta lagt af mörkum til að efla sjálfbærnimenntun í skólum og hvernig best sé að standa að þeim breytingum á kennslu greinarinnar sem nauðsynlegar kunna að verða til að stuðla að sjálfbærri þróun.  

  • Tvö skipti, fjórar kennslustundir í senn (laugardagar 9-12 eða á öðrum umsömdum tímum)

Hæfniviðmið

Að loknu námskeiðinu á kennari að geta:

  • greint hvaða viðfangsefni og aðferðir í eigin kennslu falla undir hugmyndir um sjálfbærnimenntun
  • skipulagt kennslu og valið viðfangsefni nemenda sem stuðla að aukinni getu til aðgerða
  •  lagt mat á skólanámskrá einnar kennslugreinar

Gögn

Aðalnámskrá grunn- eða framhaldsskóla, skólanámskrá eigin kennslugreinar og önnur gögn sem kennarar benda á af vef.

Umsjón

Mynd af Auður Pálsdóttir Auður Pálsdóttir Dósent 5255332 audurp [hjá] hi.is
Mynd af gervimanni Marey Allyson Macdonald Prófessor emeritus 5255323 allyson [hjá] hi.is
Mynd af Ingólfur Ásgeir Jóhannesson Ingólfur Ásgeir Jóhannesson Prófessor 5255523 ingo [hjá] hi.is