Styrkumsóknir og rekstur rannsóknarverkefna

Styrkumsóknir

Nemendum, kennurum og starfsfólki Háskóla Íslands standa til boða styrkir úr sjóðum sem starfræktir eru við Háskólann og ýmsum innlendum og erlendum sjóðum. 

Starfsfólk Menntavísindastofnunar sér um að aðstoða rannsakendur með styrkumsóknir og rekstur rannsóknarverkefna.

Hvað geri ég til að sækja um styrk?

Hafðu samband við rannsóknarstjóra Menntavísindastofnunar, í beinu framhaldi verður gerð styrkumsókn í samráði við Menntavísindastofnun til að tryggja að allar upplýsingar séu réttar.

Bóka tíma hér fyrir ráðgjöf um styrkumsóknir

Styrktarsjóðir innan HÍ

Doktorsstyrkjasjóður HÍ

Doktorsstyrkjasjóður er safn sjóða sem eru sérstaklega til þess fallnir að styrkja nemendur í doktorsnámi. 

Verkefnastyrkir Rannsóknasjóðs

Markmið sjóðsins er að efla rannsóknarstarf innan Háskóla Íslands. 

Nýliðunarsjóður HÍ - Nýdoktorastyrkirjh 

Nýdoktorastyrkir eru ætlaðir vísindamönnum sem hafa lokið doktorsprófi á síðastliðnum sjö árum. 

Styrkir eru veittir til allt að þriggja ára.

Aðrir styrktarsjóðir

Rannsóknarsjóður Rannís hefur umsjón með helstu samkeppnissjóðum á sviði rannsókna og nýsköpunar, menntunar og menningar á Íslandi, auk samstarfsáætlana ESB og norrænna áætlana sem veita styrki til samstarfsverkefna, náms og þjálfunar. 

Umsóknarfrestur er 15. júní 2024

Fyrir hverja?

Umsækjendur: Vísindafólk og doktorsnemar í rannsóknatengdu námi á sviði menntavísinda við íslenska háskóla og rannsóknastofnanir. Samstarfsaðilar (meðumsækjendur): fagfólk á sviði menntamála, s.s. við leik-, grunn- og framhaldsskóla, sveitarfélög, félagasamtök og fyrirtæki. Sjá nánar hverjir geta sótt um neðar á síðunni.

Til hvers?

Sjóðurinn styrkir hagnýtar menntarannsóknir á sviði leikskóla, grunnskóla, framhaldsskóla og frístundastarfs. Markmið menntarannsóknasjóðs er að styrkja stoðir hagnýtra menntarannsókna, auka tækifæri til að skapa og miðla þekkingu til framþróunar og farsældar í skólastarfi og styðja við framkvæmd menntastefnu.

Umsóknarfrestur

23. nóvember 2023, kl. 15:00.

Sjá nánari upplýsingar hér: Menntarannsóknarsjóður

Erasmus+ er styrkjaáætlun Evrópusambandsins fyrir málefni í tengslum við menntun, æskulýðs- og íþróttamál.

Nánari upplýsingar um Erasmus + styrki er að finna hjá Menntavísindastofnun.

NordForsk er stofnun sem er starfrækt af Norrænu ráðherranefndinni. Hægt er nálgast nánari upplýsingar styrki sem hægt er að sækja um í NordForsk hjá Menntavísindastofnun.

Nordplus er starfrækt af Norrænu ráðherranefndinni og snýr að mennamálum. Hægt er nálgast nánari upplýsingar styrki sem hægt er að sækja um í Nordplus hjá Menntavísindastofnun.

NOS-HS

Chanse 

Horizon Europe 

Fjármálaráðgjöf og rekstur rannsóknarverkefna

Menntavísindastofnun getur veitt starfsfólki Menntavísindastofnunar fjármálaráðgjöf vegna skýrslna og daglegs rekstur rannsóknarverkefna. 

Þegar styrkur fæst þá þarf að reka verkefnið. Það er gert í samráði við rannsóknarstjóra (krishar@hi.is) og verkefnisstjóra innlendra og erlendra rannsóknarverkefna (ellen@hi.is), sem sér um fjármál verkefnisins. 

  • -Byrja þarf á að tilkynna að styrkur hafi fengist. Þá er gert viðfangsnúmer sem nota þarf við allan rekstur verkefnissins. 
  • -Skýrslur þurfa að fara í gegnum rannsóknarstjóra og verkefnisstjóra innlendra og erlendra rannsóknarverkefni. 
  • -Verkefnisstjóri sér um fjárhagshliðina og rannsóknarstjóri les yfir skýrsluna og kvittar fyrir og sendir inn skýrsluna. 

Nánari upplýsingar

Mynd af Ellen Dröfn Gunnarsdóttir Ellen Dröfn Gunnarsdóttir
  • Verkefnisstjóri
5255593 edg [hjá] hi.is Menntavísindastofnun
Mynd af Ellen Óttarsdóttir Ellen Óttarsdóttir
  • Verkefnisstjóri
5255920 ellen [hjá] hi.is Menntavísindastofnun
Mynd af Kristín Harðardóttir Kristín Harðardóttir
  • Forstöðumaður
5254165 krishar [hjá] hi.is Menntavísindastofnun