Fréttir
13. janúar 2025
Hérna eru glærurnar frá viðburðinum Pals fyrir 2. - 6. bekk og markviss orðaforðavinna - Innleiðing og þróun í Bretlandi:
8. janúar 2025
Haltu mér – slepptu mér er fyrirlestraröð fyrir foreldra ungmenna á aldrinum 12-18 ára um ýmis málefni sem tengjast þroska og uppeldi unglinga með áherslu á áskoranir í nútímasamfélagi.
Sigríður Ólafsdóttir rýnir í niðurstöður PISA-könnunarinnar í lesskilningi árið 2022. Hún mun fjalla um hæfniþrep PISA og tengja þau við samfélagslega umræðu hér á landi. Þá mun hún fjalla um mál- og læsiseflandi samskipti á heimili og í skóla sem leggja grunn að djúpum lesskilningi, eins og metinn er í lesskilningshluta PISA. Viðburðurinn verður þriðjudaginn 4. febrúar kl. 20:00 - 21:00
Sigríður Ólafsdóttir er dósent við Menntavísindasvið Háskóla Íslands. Meginrannsóknasvið hennar beinast að málþroska og læsi, þróun orðaforða, lesskilnings- og ritunarfærni hjá ein-, tví- og fjöltyngdum nemendum.
Ókeypis aðgangur og öll velkomin.
7. janúar 2025
Á morgun þann 8. janúar kl. 15:00 - 16:30 verður viðburður á Menntavísindasviði Háskóla Íslands í Kletti (K-205) sem heitir Pals fyrir 2. - 6. bekk og markviss orðaforðavinna - Innleiðing og þróun í Bretlandi.
Fyrirlesarar eru:
Dr Emma Vardy, Nottingham Trent háskólanum og Aaron Jordan, aðstoðarskólastjóri, Millfield LEAD Trust
Peer Assisted Learning Strategies (PALS) er gagnreynd aðferð við lestrarkennslu, þróuð í Bandaríkjunum af Doug og Lynn Fuchs. Til eru nokkrar útgáfur af PALS sem hafa verið innleiddar víða um heim með góðum árangri, meðal annars á Íslandi.
Í Bretlandi hófst innleiðing og þróun PALS kennsluefnisins sem ætlað er fyrir 2.-6. bekk fyrir 10 árum. Vegferðin hefur falið í sér þróun sem leiddi til aukinnar áherslu á vinnu með orðaforða til viðbótar við PALS kennsluna.
Á fræðslufundinum fjalla þau Dr. Emma Vardy og Aaron Jordan um innleiðingu á PALS og þróun kennsluhátta sem bættu árangur í lesfimi og lesskilningi. Hluti af vegferð þeirra var að undirgangast mat frá matsstofnuninni Education Endowment Foundation sem staðfesti góðan árangur af kennslunni.
Dr. Emma Vardy er dósent í þroskasálfræði við Nottingham Trent háskólann. Rannsóknir hennar eru á sviði sálfræði menntunar, einkum tengt læsi barna. Dr. Vardy hefur sérstakan áhuga á viðhorfi til lestrar, lestrarhvatningu og yndislestri grunn- og framhaldsskólanema. Nýjustu greinar hennar fjalla um sjónarhorn foreldra á fjölbreytileika lesefnis barna þeirra og um þátttöku dýra umhverfi menntastofnana. Dr. Vardy hefur einnig unnið að gerð leiðbeininga fyrir mat á innleiðingu og framkvæmd hjá TASO (Transforming access and outcomes for students).
Aaron Jordan er aðstoðarskólastjóri í grunnskóla í Leicestershire. Hann hefur kennt á yngsta og miðstigi í 18 ár og hefur verið aðstoðarskólastjóri í 13 ár. Hlutverk hans er meða annars að stýra kennslu í ensku og lestri þvert á skólann (LEAD Academy Trust), innleiða kennsluaðferðir í lestri og þróa lestrarmenningu. Aaron tók þátt í PALS-UK rannsókninni sem hófst haustið 2019 og hefur í samvinnu við Dr. Emmu Vardy þróað nýja nálgun við að greina, kenna og meta orðaforða.
Kærar þakkir fyrir frábæra mætingu á kynningu þeirra Emmu Vardy og Aarons Jordan í gær. Það gleður okkur mjög hvað áhuginn er mikill.
Við munum fylgjast vel með framgangi rannsóknar á PALS í Bretlandi og Starling verkefninu og miðla inn upplýsingum sem við getum fengið t.d. handbók og myndböndum. Við hvetjum ykkur til að fylgjast með facebook síðunni PALS kennarar og einnig síðum
Hérna getið þið fengið glærurnar frá viðburðinum.
11. nóvember 2024
FRAMTÍÐIN Í MÁLTÆKNI OG MENNTUN
Sigríður Ólafsdóttir, dósent við Menntavísindasvið HÍ, kynnti hvernig rafrænar orðabækur geta nýst í menntastarfi í erindinu: „Íslenskur námsorðaforði í rafrænar orðabækur“.
Aðilar vítt og breitt úr máltækniheiminum komu saman og fögnuðu þeirri þróun sem á sér stað á sviði máltækni á íslensku á máltækni þing Almannaróms „Það virkar“ mánudaginn 11. nóvember í Grósku, en það markaði jafnframt upphaf viku islenskunnar. Málþingið snerist um mikilvægi máltækniáætlunar Íslands 2024-2026 sem miðar að því að tryggja framtíð tungumálsins í stafrænu umhverfi og salurinn var einróma um að halda þurfi vel á spöðunum og tryggja góða samvinnu.
21. október 2024
Á sunnudaginn síðastliðinn var frumfluttur þátturinn Læsi í umsjón Guðrúnar Hálfdánardóttur. Í þættinum skipuðu fulltrúar rannsóknastofunnar stóran sess. eftirfarandi var tekið af vef Rúv.
Læsi og lesskilningi barna og ungmenna hefur hrakað á Íslandi og er árangur allra árganga grunnskólans í lesfimiprófum undir viðmiðum Miðstöðvar mennt-unar og skólaþróunar. Rannsóknir sýna að tvö lykilsvið þroska barna á leik-skólaaldri; sjálfstjórn og læsi, hafa áhrif á námsárangur síðar meir.
Viðmælendur: Auður Björgvinsdóttir, Freyja Birgisdóttir, Sigríður Ólafsdóttir og Steinunn Gestsdóttir.
1. október 2024
Velheppnuð Menntakvika var haldin 26. og 27. september síðastliðinn. Þar héldu fulltrúar rannsóknastofunnar áhugaverð erindi.
Jóhanna Thelma Einarsdóttir fjallaði um Lanis skimunarlistann og stöðu málþroska tvítyngdra leikskólabarna á pólsku og íslensku.
Kristján Ketill Stefánsson fjallaði um virka þátttöku í lestri á mið- og unglingastigi og tengsl við snjalltímanoktun á skólatíma.
Auður Soffíu Björgvinsdóttir fjallaði um áhrif markvissrar hljóðaaðferðar og félagakennslu á lestrarfærni barna og vísbendingar um lestrarvanda.
Amelia Larimer fjallaði á ensku um Effect of Explicit Peer-Assisted Instruction on Icelandic Emergent Multilingual Children´s Early Reading Growth.
25. september 2024
Meðlimir rannsóknastofunnar munu verða með ýmis erindi á Menntakviku sem er árleg ráðstefna haldin í lok september. Núna verður hún haldin í Hátíðarsal HÍ og á Sögu, nýju húsnæði Menntavísindasviðs fimmtudaginn 26. og föstudaginn 27. september.
Sjá má dagskrána hér: Dagskrá Menntakviku 2024 - Menntakvika Háskóla Íslands (hi.is)
16. september 2024
Á læsisráðstefnu HA 2024 – Hvað er að vera læs? var okkar fólk með ýmis erindi.
Auður Soffíu Björgvinsdóttir aðjúnkt við Menntavísindasvið Háskóla Íslands var einn aðalfyrirlesara með erindið: Heimalestur: Mikilvægi samstarfs og sveigjanleika í heimalestrarþjálfun út frá stöðu heimilis og nemenda í lestri ásamt Guðbjörgu Rut Þórisdóttur læsisfræðingi og læsisráðgjafa hjá Miðstöð menntunar og skólaþjónustu.
Dr. Jóhanna Thelma Einarsdóttir prófessor við Háskóla Íslands var einnig einn aðalfyrirlesara með erindið: Hvað er til ráða varðandi stöðu fjöltyngdra barna á Íslandi.
Auður Soffíu Björgvinsdóttir var einnig með Vinnustofuna: Viltu prófa Grunn-Pals kennslustund og Málstofuna: Áhrif markvissrar hljóðaaðferðar og félagskennslu í lestrarfærni barna með vísbendingu um lestrarvanda
Dr. Anna-Lind G. Pétursdóttir var með málstofuna: Geta gagnreyndar kennsluaðferðir dregið úr ójöfnuði í lestrarnámi barna?
16. september 2024
Auður Soffíu Björgvinsdóttir og Freyja Birgisdóttir mættu í þáttinn Sprengisand á Bylgjunni og ræddu um Vá fyrir dyrum: Lestrarfærni þarf að batna.
Hér má hlusta á þáttinn: https://www.visir.is/k/46b8d548-0fa1-41d2-9cd1-aef2fdda3157-1725797074001/va-fyrir-dyrum-lestrarfaerni-tharf-ad-batna
16. september 2024
Grein eftir Freyju Birgisdóttur birtist í Morgunblaðinu 8. ágúst síðastliðinn sem heitir Matsferill í stað samræmdra prófa. Hér má lesa greinina: https://island.is/s/midstod-menntunar-og-skolathjonustu/frett/matsferill-i-stad-samraemdra-profa?fbclid=IwY2xjawFWfE5leHRuA2FlbQIxMQABHS8XeRFaQpSCyWz9izEKvjrbuiJBN5rPKsiBTXxx4ZAVy-cvzepAOqJ6XQ_aem_K9dsVXG7Wv3sbfMQaVk3zw
16. september 2024
Viðtal við Auði Soffíu Björgvinsdóttur birtist í Morgunblaðinu 2. september og bar titilinn Börnin kunna jafnvel enga bókstafi. Hér má lesa um greinina: https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/09/02/bornin_kunna_jafnvel_enga_bokstafi/?fbclid=IwY2xjawFWfOxleHRuA2FlbQIxMQABHSJFVkuLDEgcUTDljtRqSu3Bcx3GmC8B86Ey746ABUI4xlcAhPa3MvIb9w_aem_MY9OV1QpLDk0O3ir7ottZg