Fagleg forysta
Námskeið fyrir fræðslustjóra eða aðra stjórnendur skólamála í sveitarfélaginu og skólastjórnendur um faglega forystu breytingastarfs í skólum.
Markmiðið er að þátttakendur kynnist helstu hugmyndum og aðferðum um árangursríkt umbótastarf í skólum og fái þjálfun í að beita þeim við að leiða breytingastarf á eigin starfsvettvangi. Nálgunin byggist á kenningum um skólann sem lærdómssamfélag.
- Lágmarksfjöldi er 15 manns
- Æskilegt er að þátttakendur leggi áherslu á að geta verið á öllu námskeiðinu
Vinnulag (dæmi)
Þátttakendur vinna að raunverulegu verkefni sem felst í að vinna að ákveðnu umbótaverkefni í eigin skóla.
Um getur verið að ræða verkefni sem er á upphafsreit eða eitthvað sem þegar er komið af stað.
- Verkefnið er valið eftir fyrsta fund
Átta sameiginlegar vinnustofur verða skipulagðar yfir skólaárið. Auk þess stendur hverjum skóla til boða stutt námskeið/fyrirlestur/ráðgjöf einu sinni (tvisvar) yfir skólaárið sem aðlagað er að þörfum skólans og tengist þeim verkefnum sem stjórnendur hafa ákveðið að einbeita sér að í tengslum við námskeiðið.
Á vinnustofum eru skipulagðir stuttir fyrirlestrar en megin áhersla er á gagnkvæma miðlun og umræður meðal þátttakenda.
Gert er ráð fyrir að þátttakendur lesi skilgreindan fræðilegan texta (á íslensku eða ensku) á milli funda (verður ekki of mikið).
- Athugið að vinnulag og umfang námskeiðsins er samkomulag
Tímaáætlun (dæmi)
Tímasetning | Viðfangsefni |
---|---|
Dagur í september 13:00-15:30 | Að skerpa eigin áherslur og framtíðarsýn |
Dagur í október 13:00-15:30 | Skóli sem lærdómssamfélag í tengslum við umbótastarf |
Dagur í nóvember 13:00-15:30 | Stefnumótun, markmiðssetning og áætlanagerð |
Dagur í janúar 10:00-12:30 | Að stuðla að virku samstarfi innan og milli skóla |
Dagur í febrúar 13:00-15:30 | Markviss nýting á gögnum og rannsóknarniðurstöðum til að styðja við umbótastarf |
Dagur í janúar 10:00-12:30 | Samskipti og boðleiðir í starfsmannahópum |
Dagur í maí 13:00-15:30 | Starfsþróun sem styður við umbótastarf |
Dagur í júní 9:00-14:00 | Uppskeruhátíð |
Umsjón
![]() |
Anna Kristín Sigurðardóttir | Prófessor | 5255502 | aks [hjá] hi.is | https://iris.rais.is/is/persons/779127d7-7fb3-4e53-b1d8-41746d2a6afd | Deild menntunar og margbreytileika |