Jafnréttismál
Drengir, stúlkur og skólastarf.
- Umfang 2–4 kennslustundir eftir samkomulagi í eitt skipti
- Tímasetning er eftir samkomulagi
Markmið
- Að ræða grunnhugtök um jafnrétti og skólastarf, karlmennsku og kvenleika
- Að gefa yfirlit um innlendar og erlendar umræður um stöðu drengja og stúlkna í skólum
Viðfangsefni
Kynnt verða nokkur grunnhugtök um jafnrétti og skólastarf, karlmennsku og kvenleika og rætt um innlendar og erlendar umræður um stöðu drengja og stúlkna í skólum.
Sérstök verður áhersla er lögð á að ræða um ríkjandi hugmyndir um karlmennsku í samfélaginu sem hafa skaðleg áhrif á drengi og áhuga þeirra á námi.
Einnig verður fjallað um mögulegar starfs- og kennsluaðferðir í viðkomandi skóla.
Vinnulag
Hópavinna, fyrirlestur, hópavinna.
Kennt er í viðkomandi leik-, grunn- eða framhaldsskóli – eða húsnæði Háskóla Íslands.
Nemendur geta verið upp í 100 í einu.
Umsjón
![]() |
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson | Prófessor emeritus | 5255523 | ingo [hjá] hi.is | https://iris.rais.is/is/persons/6a8de2ca-8dcf-4a14-aea2-e438744e678b | Deild faggreinakennslu |