Upplýsingatækni í tungumálakennslu

Námskeiðið er fyrir alla kennara sem koma að tungumálakennslu. 

Námskeiðið er kennt í fjarnámi og er gert ráð fyrir að þátttakendur vinni og skili öllum verkefnum í tölvutæku formi. 

Markmið

  • að þátttakendur átti sig á möguleikum upplýsingatækninnar í tungumálakennslu sem gerir þeim kleift að nota hana á fjölbreytilegan hátt 
  • að þátttakendur öðlist færni í að vega og meta af gagnrýni það námsefni sem veraldarvefurinn hefur uppá að bjóða

 

Viðfangsefni

Lögð er sérstök áhersla á að þátttakendur kynni sér:

  • kennsluefni á veraldarvefnum og notkun þess á markvissan hátt
  • kennsluforrit
  • notkun gagnvirkra verkefna
  • notkun tölvu- og leiðréttingarforrita í sambandi við ritunarverkefni

Einnig er  þátttakendur þjálfaðir í að búa til gagnvirk verkefni og vefleiðangur til notkunar í tungumálakennslu. 

Umsjón

Mynd af Michael Dal Michael Dal Dósent 5255538 michael [hjá] hi.is https://iris.rais.is/is/persons/ef07e49c-6e45-4823-ac7b-90cd89bf2184 Deild faggreinakennslu