Rannsóknarstofa um náttúrufræðimenntun (RAUN)
Rannsóknarstofan beitir sér fyrir rannsóknum og þróunarverkefnum á sviði náttúrufræðimenntunar og annars skipulags náms og kennslu.
Meðal sértækra viðfangsefna má telja kennsluaðferðir, skólaþróun, námskrár, námsefni, námsgögn, skipulag náms og kennslu, námsmat.
Rannsóknarstofa um náttúrufræðimenntun (RAUN) byggir á starfi rannsóknarhóps um náttúrufræðimennun. Hún var stofnuð 18. maí 2012.
Stofan beitir sér fyrir rannsóknum og þróunarverkefnum á sviði náttúrufræðimenntunar og annars skipulags náms og kennslu.
Meðal sértækra viðfangsefna má telja:
- kennsluaðferðir
- skólaþróun
- námskrár
- námsefni
- námsgögn
- skipulag náms og kennslu
- námsmat
Markmið RAUN og hópsins er að beita sér fyrir rannsóknum og þróunarverkefnum á sviði náttúrufræðimenntunar.
Helstu viðfangsefni rannsóknastofunnar
- Kennslufræði náttúrugreina á öllum stigum skólakerfisins
- Saga náttúrufræðimenntunar á Íslandi
- Að standa fyrir ráðstefnum og fundum til að miðla þeirri þekkingu sem aflað er
- Að skapa vettvang fyrir meistara- og doktorsnema til að taka þátt í rannsóknum
- Að taka að sér rannsóknaverkefni sem til stofunnar er beint
Ráðstefnuhald
Rannsóknarstofan stendur fyrir ráðstefnu um náttúrufræðimenntun annað hvert ár í samstarfi við ýmsa aðila sjá: https://malthing.natturutorg.is/
Samstarf
- Norsed - norrænt rannsóknarnet um náttúrufræðimenntun
- Náttúrutorg um ýmis verkefni
- Verkefnastjóra NaNO um símenntunarnámskeið, fundi, málþing ofl.
- Félag leikskólakennara um málþing um náttúrufræðimenntun
- Samlíf, samtök líffræðikennarar um fundi og málþing
Formaður
Haukur Arason HÍ - formaður
Stjórn
Kristín Norðdahl HÍ
Sean Scully HA
Svava Pétursdóttir HÍ
*uppfært des 2023
Fyrri rannsóknarverkefni
- Sameiginleg trú kennara á eigin getu, verkefni styrkt af RANNÍS. Rannsakendur Allyson Macdonald, Auður Pálsdóttir, Svanborg Jónsdóttir, Svava Pétursdóttir, Almar Halldórsson og Ragnar F. Ólafsson.
- Staða náttúrufræðimenntunar í grunnskólum landsins. Rannsakendur: Svava Pétursdóttir, Gunnhildur Óskarsdóttir og Allyson Macdonald.
- Hlutverk útiumhverfis í námi barna: doktorsverkefni Kristínar Norðdahl.
- Natgrep. Samnorrænt þróunarverkefni um hugtaka nám leikskólabarna í náttúrufræði: Kristín Norðdahl
- POET – Pedagogies of Educational Transitions. Alþjóðlegt samstarf um rannsóknir á flutningi barna milli skólastiga og samfellu í námskrám: Kristín Norðdahl.
- Leikum, lærum lifum. Samstarfsrannsókn háskólakennara og leikskólakennara um þróun starfs í tengslum við námsviðið sjálfbærni og vísindi í leikskólastarfi: Kristín Norðdahl.
Doktorsverkefni
- Auður Pálsdóttir (2014) „Sjálfbærni – námssvið í mótun á Íslandi. Þróun sjálfsmatstækis fyrir skóla / Sustainability as an emerging curriculum area in Iceland. The development, validation and application of a sustainability education implementation questionnaire.
- Kristín Norðdahl (2016) The outdoor environment in children's learning
- Meyvant Þórólfsson (2013) Transformation of the Science Curriculum in Iceland sjá:
- Svanborg Jónsdóttir (2011) The location of innovation education in Icelandic compulsory schools
- Svava Pétursdóttir (2012) Using information and communication technology in lower secondary science teaching in Iceland Ed.D. Thesis University of Leeds
Skýrslur og skrif
- Geta til sjálfbærni - Menntun til ábyrgðar. (2007-2010). Birna Hugrún Bjarnadóttir, Helen Símonardóttir, Rúna Björg Garðasdóttir (2007) Staða náttúrufræðikennslu í grunnskólum Verkefna- og námsstyrkjasjóður FG og SÍ
- Vilji og veruleiki. /2005-2007) Bæklingur, Menntamálaráðuneytið (2005) Menntun kennara í stærðræði- og náttúrufræðigreinum í grunn- og framhaldsskólum 2003-2004, Samantekt úr upplýsingaöflun menntamálaráðuneytisins . Rit 21