Rannsóknarstofa í bernsku- og æskulýðsfræðum
Stofan sinnir rannsóknum á lífi og lífsskilyrðum barna, unglinga og ungmenna þar sem menntun og uppeldi eru séð í heildrænu samhengi einstaklings og samfélags.
Rannsóknarstofa í bernsku- og æskulýðsfræðum hefur frumkvæði að og sinnir rannsóknum á á lífi og lífsskilyrðum barna, unglinga og ungmenna þar sem menntun og uppeldi eru séð í heildrænu samhengi einstaklings og samfélags.
Aðalmarkmið rannsóknarstofunnar er að auka og efla rannsóknir á sviði bernsku- og æskulýðsfræða
Hlutverk og markmið
- Eiga frumkvæði að og sinna rannsóknum á sviðinu
- Vera samstarfsvettvangur fræðimanna á sviðinu og við fræðimenn annarra sviða
- Hafa samstarf og tengsl við þá aðila sem móta stefnu og sjá um framkvæmdir á sviðinu í samfélaginu
- Hafa samstarf við erlenda aðila um rannsóknir og þróun
- Veita nemum í rannsóknartengdu framhaldsnámi þjálfun og reynslu í vísindalegum vinnubrögðum
- Stuðla að yfirsýn fáist yfir rannsóknir á umræddu sviði, miðla þekkingu og kynna niðurstöður rannsókna meðal annars með útgáfu fræðigreina og fræðirita og með fyrirlestrahaldi
- Veita ráðgjöf og aðra þjónustu á sínu sviði
Margvíslegar rannsóknir skortir hér á landi á þessu viðfangsefni.
Kenningar líðandi stundar eru gagnrýnar á fyrri tíma kenningar um aðstæður og félagsmótun nútímabarna og þróun þeirra sem meðal annars tóku ekki nægilega mið af gagnverkandi þáttum.
Rannsóknir stofunnar hverfast um hnattræna og staðbundna bernsku- og æskulýðsmenningu, félagsleg ferli og þátttöku barna og unglinga í mótun eigin lífs og hinna ýmsu samfélagssviða. Þær lúta einnig að þróun og störfum fagstétta sem sinna málefnum barna og ungmenna.
Forgangsverkefni Rannsóknarstofu í bernsku- og æskulýðsfræðum snúa að félagslegum og menningarlegum þáttum og inntaki og hlutverki menntunar í því samhengi.
Verkefnin snúa að því að rannsaka:
- tengsl samfélags og menntunar
- uppeldishlutverk menntunar
- lífsgæði
- velferð og öryggi barna og unglinga
- efla styrk og völd
- jafnrétti
- samfélagslega þátttöku barna og unglinga meðal annars með því að rannsaka hagsmunatengsl og stöðu jaðarhópa
Samstarf
Rannsóknarstofa í bernsku- og æskulýðsfræðum er samstarfsvettvangur fræðimanna á sviðinu og leggur jafnframt áherslu á samstarf við fræðimenn á öðrum sviðum.
Fræðasvið sem lúta að bernsku- og æskuskeiði nútímans eru fjölmörg en jafnframt einkennast þau af fræðilegu samstarfi sem er forsenda frjórrar samræðu og árangursríkra rannsókna.
Stofan hegur samstarf og tengls við:
- erlenda aðila
- fagstéttir
- stjórnvöld
- sveitafélög og fjölmarga aðra
Stofan veitir nemum í rannsóknartengdu framhaldsnámi þjálfun og reynslu í vísindalegum vinnubrögðum með því að gefa þeim kost á að vinna rannsóknir og námsverkefni á vegum rannsóknarstofunnar.
Nemar hafa bakgrunn í félagsvísindum eða hafa hlotið kennslu og þjálfun á ýmsum sviðum kennaramenntunar án þess að hafa lagt stund á tiltekin félagsvísindi. Þarfir nema eru því oft margvíslegar. Nemar sem stunda atvinnu samhliðanámi eru líklegir til að byggja á fyrri starfsreynslu í menntageiranum, þetta á líka við um suma nema í fullu námi. Viðeigandi rannsóknarreynsla og nám er höfð til hliðsjónar við að skilgreina þarfir og viðfangsefni.
Rannsóknarstofan stuðlar að því að yfirsýn fáist yfir rannsóknir á umræddu sviði, miðlar þekkingu og kynnir niðurstöður rannsókna meðal annars með útgáfu fræðigreina og fræðirita og með fyrirlestrahaldi.
Formaður
- Ólöf Garðarsdóttir, prófessor, formaður (olofgard@hi.is)
Stjórn 2015-2016
- Gestur Guðmundsson, prófessor
- Guðrún Kristinsdóttir, prófessor
- Árni Guðmundsson, námsbrautarstjóri
Varastjórn
- Guðrún Valsdóttir, doktorsnemi
Bækur
- Guðrún Kristinsdóttir (ritstj.). Ofbeldi á heimili. Með augum barna. Reykjavík: Háskólaútgáfan, 2014.
- Guðrún Kristinsdóttir og Nanna. K. Christiansen. Ofbeldi gegn börnum: Handbók fyrir starfsfólks skóla. Námsgagnastofnun, 2014. Rafbók.
Greinar
- Jóhanna Kr. Arnberg Gísladóttir, Guðrún Kristinsdóttir og Amalía Björnsdóttir. „‚Voruð þið að tala um mig?‘ Um nemendavernd í grunnskólum.“ Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun 31. desember 2015.
- Gestur Guðmundsson. „Vegferð til fullorðinsaldurs: Alþjóðlegar fræðahefðir og erindi þeirra við íslenskar rannsóknir.“ Uppeldi og menntun/The icelandic journal of education 24, 2 (2015): 9-32.
- Gestur Guðmundsson. „Innflytjendur í íslenskum framhaldsskólum.“ Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun: Sérrit 2013 – Rannsóknir og skólastarf (2013).
- Gestur Guðmundsson og Hulda Karen Ólafsdóttir. „Brotthvarf og endurkoma fullorðinna í nám á framhaldsskólastigi.“ Tímarit um menntarannsóknir/Journal of Educational research (Iceland) 10 (2013): 44-64.
- Guðrún Kristinsdóttir og Ingibjörg H. Harðardóttir. „Mörg íslensk börn hafa vitneskjuna: Um þekkingu og skilning barna á ofbeldi á heimilum.“ Tímarit hjúkrunarfræðinga 84, 5 (2008): 46-54.
Nemendaverkefni
- Vilborg H. Ívarsdóttir. „Farsæld í fóstri: líðan og velferð fósturbarna.“ MA-ritgerð. Háskóli Íslands, 2015.
- Ingibjörg Ýr Pálmadóttir. „‚Markmið mitt í lífinu er að enda ekki á Hrauninu.‘ Námsgengi barna í grunnskóla á Íslandi sem eiga foreldri í fangelsi.“ MA-ritgerð. Háskóli Íslands, 2015.
- Jóhanna K. Gísladóttir. Nemendavernd í grunnskólum. MA-ritgerð. Háskóli Íslands, 2015.
- Áslaug Guttormsdóttir. „Fósturbörn og skólaganga: samvinna, þátttaka og valdefling.“ MA-ritgerð. Háskóli Íslands, 2015.
Meðal rannsókna
Þekking barna á ofbeldi á heimilum
- undir stjórn Guðrúnar Kristinsdóttur.
Frihet og likhet for velferdsstatenes barn? Nordiske barndommer 1900 – 2000. Norrænt rannsóknarverkefni, Ólöf Garðarsdóttir.
- Rannsókn á framhaldsskólagöngu innflytjenda og barna innflytjenda, Gestur Guðmundsson.
- Atvinnuleysi ungs fólks upp úr kreppunni 2008. Aðgerðir gegn því, og hvaða árangri hafa þær skilað þátttakendum í menntun og vinnu, Gestur Guðmundsson.
- Illt er að vera iðjulaus. Skóli og vinna. Vettvangur barna og ungmenna á Íslandi 1950-1990, Ólöf Garðarsdóttir.
Doktorsverkefni sem unnin eru í tengslum við rannsóknarstofuna
- Hvernig læra menn á Íslandi að verða rithöfundar? Guðrún Valsdóttir.
- Fagmennska og æskulýðsstarf, Árni Guðmundsson.
- Notendasamráð við ungt fólk, H. Alma Árnadóttir.
Önnur nemendaverkefni
- Fræðsluefni um heimilisofbeldi fyrir börn á yngsta stigi grunnskóla, Arndís Oddfríður Jónsdóttir, M.Ed., yfirstandandi 2016.
Verkefnum sem er nýlega lokið
Vitundarvakning um skólafræðslu um kynferðisofbeldi gegn börnum.
- Berglind Rós Magnúsdóttir og Guðrún Kristinsdóttir
Í samvinnu við Vitundarvakningu ríkisstjórnarinnar um kynferðisofbeldi gegn börnum.
Í tengslum við þetta verkefni vann
- Guðrún Edda Bjarnadóttir BA-verkefnið
"Brúðuleikhús sem námstæki og frásagnaraðferð: Átaksverkefni gegn líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi gagnvart börnum"